
Hjallastefnan
Hjallastefnan er kærleiksmiðuð og skapandi lýðræðisstefna. Hjallastefnan rekur í dag 14 leikskóla og þrjá grunnskóla.
Drifkrafturinn í rekstri Hjallastefnunnar er sú skólahugsjón sem allt starf Hjallastefnunnar byggir á. Starfsfólk fyrirtækisins trúir því staðfastlega að starf þeirra skipti miklu máli og að það eigi með vinnu sinni þátt í því að skapa betri framtíð fyrir börn þessa lands.
Jafnréttisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir í námskrá Hjallastefunnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska þeirra einstaklinga sem okkur er treyst fyrir. Einnig er trú okkar að öflugt fyrirtæki í sjálfstæðum skólarekstri geti skapað nýjungar og unnið að tilraunaverkefnum sem veiti hinu opinbera kerfi nauðsynlegt og tímabært aðhald í því að efla fagstarf sitt og þjónustu – öllum börnum til hagsbóta.
Skólar Hjallastefnunnar starfa sjálfstætt undir stjórn síns leik- eða grunnskólastjóra sem hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á daglegum rekstri skólans. Þannig hefur hver skóli sitt eigið andrúmsloft og sína eigin menningu en allir starfa þeir þó að sameiginlegu markmiði og eftir sömu námskrá sem liggur til grundvallar öllum þáttum fagstarfsins.

Stöður leikskólakennara í Árbæ á Selfossi fyrir haustið 2025
Leikskólinn Árbær á Selfossi leitast eftir að ráða leikskólakennara fyrir skólaárið 2025-2026.
Árbær er rekinn af Hjallastefnunni og starfar samkvæmt hugmyndafræði hennar. Hjallastefnan er kærleiksmiðuð og skapandi lýðræðisstefna.
Við leitum að lífsglöðum, kærleiksríkum og skapandi leikskólakennurum sem hafa áhuga á að iðka jafnrétti, sjálfbærni og lýðræði í skólastarfi.
Í Árbæ ríkir góður starfsandi sem einkennist af stuðningi, gleði og valdeflingu.
Við leitum að kennurum sem búa yfir:
- Áhuga á því að starfa samkvæmt hugmyndafræði Hjallastefnunnar
- Jákvæðu hugarfari
- Sveigjanleika
- Samskiptahæfni
- Hreinskiptni og áræðni
- Skapandi og lausnamiðaðri hugsun
Góð íslenskukunnátta skilyrði fyrir ráðningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kennsla og umönnun leikskólabarna
- Skipulag hópastarfs inni og úti
- Foreldrasamskipti
- Teymisvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að
- Leikskólakennurum
- Kennurum með leyfisbréf til kennslu á öðrum skólastigum
- Kennurum með aðra uppeldisfræðimenntun/háskólamenntun
- Reynsla af Hjallastefnuskólastarfi er mikill kostur
Fríðindi í starfi
- 7 tíma viðvera daglega fyrir 100% stöður
- Kaffitímar / neysluhlé á eigin forræði
- Góður og hollur heimilismatur eldaður á staðnum
Auglýsing birt20. mars 2025
Umsóknarfrestur28. mars 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Fossvegur 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniKennslaMannleg samskiptiMetnaðurUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Stærðfræðikennari á unglingastigi óskast
Kársnesskóli

Deildarstjóri stoðþjónustu - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Urriðaholtsskóli auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra
Urriðaholtsskóli

Leikskólinn Hæðarból auglýsir eftir leikskólakennara
Garðabær

Deildarstjóri Leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólann Hamra.
Leikskólinn Hamrar

Aðstoðarforstöðumaður í frístundastarfi fatlaðra barna/ungl
Kringlumýri frístundamiðstöð

Leikskólakennari á Hnoðraból
Borgarbyggð

Deildarstjóri Leikskólinn Lyngholt, Reyðarfirði
Fjarðabyggð

Leikskólakennari við Leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði
Fjarðabyggð

Leikskólakennarar/Leiðbeinendur í Klettaborg
Borgarbyggð

Leikur og málörvun - HOLT
Leikskólinn Holt