Stjórnandi þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar
Fjarðabyggð leitar að leiðtoga í starf stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar á skipulags- og framkvæmdasviði sveitarfélagsins.
Starfið heyrir undir sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs og er starfsmaður ábyrgur fyrir daglegum rekstri þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar gagnvart honum. Hann hefur yfirumsjón og eftirliti með rekstri og stjórnun þeirra málaflokka sem undir starfið heyra þ.e. framkvæmdaumsjón, þjónustumiðstöð, gatnakerfi, eignaumsjón og garðyrkjudeild. Hann ber ábyrgð á samhæfingu og samþættingu í starfsemi deildarinnar, og hefur yfirumsjón með daglegri stýringu þeirra verkefna sem þar eru unninn.
Við leitum að öflugm og framsýnum leiðtoga með víðtæka starfs- og stjórnureynslu til að koma til liðs við hóp sérfræðinga hjá sveitarfélaginu.
- Ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar og þeim málaflokkum sem undir hana heyra.
- Ábyrgð á daglegri stýringu verkefna, eftirfylgni þeirra og samhæfing starfsemi þjónustu- og framkvæmdastöðvar og móttökustöðva.
- Ábyrgð á rekstir gatnakerfis, vetrarþjónustu, umhirðu opina svæða, og umgengismálum í Fjarðabyggð.
- Ábyrgð á gerð verk- og framkvæmdaáætlana við framkvæmdir á vegum Fjarðabyggðar og eftirfylgni með verkefnum í samvinnu við sviðsstjóra.
- Ábyrgð á eftirliti og úttektum á þeim framkvæmdum sem Fjarðabyggð vinnur að hverju sinni í samvinnu við stjórnendur.
- Ábyrgð á öllum verklegum framkvæmdum og viðhaldi sem tengist nýbyggingum, mannvirkjum, húseignum, gatnakerfi og opnum svæðum sveitarfélagsoms
- Ábyrgð á samningum, eftirliti og samstarfi við verktaka vegna þeirra verkefna sem heyra undir málaflokkinn
- Ábyrgð á upplýsingamiðlun til íbúa sveitarfélagsins verðandi þá málaflokka sem undir starfið heyra.
- Ábyrgð á málsmeðferð, frágangi og eftirfylgni þeirra mála sem heyra undir málaflokkinn
- Vinnur að gerð útboða í samvinnu við sviðsstjóra vegna framkvæmda á sviðinu, og hjá Fjarðabyggðarhöfnum
- Háskólamenntun á sviði tækni- eða iðnar sem nýtist í starfi er skilyrði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur.
- Víðtæk og farsæla starfs- og stjórnunarreynsla er skilyrði.
- Framúrskarandi þekking og reynsla á stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er skilyrði.
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun stórra verkefna, og eftirfylgni með þeim.
- Góð almenn tölvukunnátta
- Þekking á helstu upplýsingakerfum.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg.