
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Steypubílstjóri á Selfossi - Sumarstarf
Steypustöðin á Selfossi leitar að sterkum og jákvæðum steypubílstjóra. Um er að ræða sumarstarf með möguleika á áframhaldi starfi. Ef þú hefur gaman að keyra, sýnir frumkvæði og vinnur vel undir álagi, þá gæti þetta mögulega verið rétta starfið fyrir þig.
Starfið felst að mestu leyti í akstri á steypubíl. Meiraprófsréttindi C eru því lágmarkskrafa. Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstakling inn í okkar góða teymi. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að takast á við nýjar og fjölbreyttar áskoranir í góðum hóp.
Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um.
Kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útkeyrsla steypu
- Dæling á steypu
- Samskipti við viðskiptavini á verkstað
- Umsjón með steypubíl
- Umsjón með steypudælu
- Vera vakandi yfir gæðum framleiðsluvöru
- Önnur tilfallandi störf í samstarfi við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gilt meiraprófsréttindi C
- Góð íslenskukunnátta kostur
- Góð enskukunnátta skilyrði
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Eftirfylgni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Mikil færni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
- Hádegismatur
- Fjölbreytt verkefni
- Námskeið og fræðsla
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
- Líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt6. maí 2025
Umsóknarfrestur22. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Hrísmýri 8, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
ÚtkeyrslaVöruflutningar
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)
Sambærileg störf (12)

Dælubílstjóri og vinna við fráveitu - Stiflur.is
Stíflutækni

Meiraprófsbílstjóri á Ísafirði
Eimskip

Sölufulltrúi í framtíðarstarf
Gæðabakstur

Útkeyrsla/lagerafgreiðsla
Íspan Glerborg ehf.

Meiraprófsbílstjóri í Reykjavík
Eimskip

Tækjamenn
Hreinsitækni ehf.

Bílstjóri snjallverslunar - Krónan Akureyri (hlutastarf)
Krónan

Bílstjórar óskast
Hópbílar

Áfylling sjálfssala
Ölgerðin

Machine operators and truck drivers on Reykjanes peninsula
Ístak hf

Vélamenn og bílstjórar á Reykjanesi
Ístak hf

Meiraprófsbílstjóri óskast í sumar.
Aalborg-portland íslandi ehf