Steypustöðin
Steypustöðin
Steypustöðin

Steypubílstjóri

Steypustöðin leitar að sterkum og jákvæðum steypubílstjórum. Ef þú hefur gaman að keyra, sýnir frumkvæði og vinnur vel undir álagi, þá gæti þetta mögulega verið rétta starfið fyrir þig.

Starfið felst að mestu leyti í akstri á steypubíl. Meiraprófsréttindi C eru því lágmarkskrafa. Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingum inn í okkar góða teymi. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að takast á við nýjar og fjölbreyttar áskoranir í góðum hóp.

Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um.

Kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Útkeyrsla steypu
  • Dæling á steypu
  • Samskipti við viðskiptavini á verkstað
  • Umsjón með steypubíl
  • Umsjón með steypudælu
  • Vera vakandi yfir gæðum framleiðsluvöru
  • Önnur tilfallandi störf í samstarfi við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gilt meiraprófsréttindi
  • Góð íslenskukunnátta kostur
  • Góð enskukunnátta skilyrði
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Eftirfylgni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Mikil færni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
  • Hádegismatur
  • Fjölbreytt verkefni
  • Námskeið og fræðsla
  • Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
  • Líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt16. september 2024
Umsóknarfrestur29. september 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnskaGrunnfærni
ÍslenskaÍslenskaGrunnfærni
Staðsetning
Malarhöfði 10, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Meirapróf CPathCreated with Sketch.Útkeyrsla
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar