

Stekkjaskóli - stuðningsfulltrúi óskast
Vilt þú taka þátt í því að byggja upp sterka liðsheild í nýjum grunnskóla á Selfossi?
Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Í dag fer starfið fram í færanlegum kennslustofum og í byrjun árs 2023 verður 1. áfangi nýbyggingar skólans tekinn í notkun. Í dag eru 172 nemendur í skólanum í 1.-5. bekk. Fullbyggður verður skólinn fyrir um 500 nemendur í 1.-10. bekk. Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.
Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af menntastefnu Árborgar sem byggir á hugmyndinni um skólann sem lifandi lærdómssamfélag.
Óskað er eftir tveimur stuðningsfulltrúum í 75% stöðuhlutfall frá og með 1. janúar eða eftir samkomulagi. Markmið starfsins er að auka sjálfstæði og færni nemenda námslega, félagslega og í daglegum athöfnum. Leitað er eftir áhugasömum og samviskusömum starfsmönnum.











