Andrastaðir
Andrastaðir
Andrastaðir

Starfsmenn óskast í búsetukjarna

Andrastaðir óska eftir drífandi starfsfólki með mikið frumkvæði til vinnu á heimili fyrir einstaklinga með fjölþættan vanda á Kjalarnesi.

Um er að ræða vaktavinnu og starfshlutfall fer eftir samkomulagi. Morgun- og kvöldvaktir Möguleiki er einnig á næturvöktum. Spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og þróun Andrastaða.

Fyrir frekari upplýsingar um starfið er hægt að hafa samband á netfangið mary@andrastadir.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hvetja og styðja þjónustuþega til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni
  • Félagslegur stuðningur við þjónustuþega
  • Aðstoð við þjónustuþega í daglegum störfum heimilisins, s.s. þrif, matseld o.fl.
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir þjónustuþega
  • Styðja þjónustuþega í undirbúningi fyrir atvinnulífið, s.s. með námi eða vinnuþjálfun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hæfni til að leita lausna og vinna úr vandamálum
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af starfi með geðfötluðum æskileg
  • Áhugi á málefnum geðfatlaðra
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð
  • Bílpróf skilyrði
Auglýsing stofnuð20. nóvember 2023
Umsóknarfrestur4. desember 2023
Starfstegund
Staðsetning
Brautarholtsvegur 63
Starfsgreinar
Starfsmerkingar