

Starfsmenn í fiskvinnslu - Fish Processing worker
Fiskvinnslan Drangur ehf. á Drangsnesi óskar eftir duglegu, jákvæðu og áreiðanlegu starfsfólki til starfa í fiskvinnslu fyrirtækisins.
Um er að ræða framtíðarstörf og hægt er að hefja störf fljótlega. Mikil vinna er í boði fyrir einstaklinga sem eru tilbúnir að leggja sig fram og taka virkan þátt í fjölbreyttum verkefnum.
Fiskvinnslan Drangur aðstoðar nýtt starfsfólk við að finna húsnæði á svæðinu. Sérstaklega hentar starfið vel fyrir pör, systkini eða vini sem vilja flytja saman og deila húsnæði.
Við leitum fyrst og fremst að einstaklingum sem eru vinnusamir, stundvísir og jákvæðir, eiga auðvelt með að vinna með öðrum og eru tilbúnir að takast á við ný verkefni. Reynsla af fiskvinnslu er kostur en ekki skilyrði.
--------------------
Fiskvinnslan Drangur ehf. in Drangsnes is looking for hard-working, positive and reliable employees to join our fish processing team.
These are long-term positions, with the possibility of starting soon. Plenty of work is available for individuals who are willing to work hard and take initiative.
Fiskvinnslan Drangur will find an apartment for rent for new employees. The positions are particularly suitable for couples, siblings or friends who would like to relocate together and share accommodation.
We are primarily looking for people who are hard-working, punctual and positive, work well with others, and are willing to take on new tasks. Previous experience in fish processing or in the food sector is an advantage, but not a requirement.
Meginverkefni starfsins eru vinna við snyrtilínu, auk annarra almennra starfa í fiskvinnslu, meðal annars:
The main responsibility is work on the fish trimming line, along with other general fish processing duties, including:
- Löndun / Landing
- Slæging / Gutting
- Flökun og flatning / Filleting and splitting
- Frysting / Freezing
- Pökkun / Packaging
- Þrif og almenn umgengni / Cleaning and general housekeeping
- Áreiðanleiki / Reliability
- Jákvætt viðhorf / Positive attitude
- Stundvísi / Punctuality
- Nákvæm og skipulögð vinnubrögð / Organised and detail-oriented working methods
- Góð samstarfshæfni / Ability to work well as part of a team
- Vilji til að læra og takast á við ný og fjölbreytt verkefni / Willingness to learn and take on a variety of tasks
Íslensk kennitala er skilyrði / An Icelandic ID number (kennitala) is required
Enska