Lóðaþjónustan ehf
Lóðaþjónustan ehf. er verktakafyrirtæki sem sérhæfir sig í jarðvinnu og yfirborðsfrágangi fyrir ríki, sveitarfélög og byggingaverktaka. Fyrirtækið er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið í rekstri síðan 1988 og hjá okkur starfa á bilinu frá 30-70 starfsmenn, þar sem mesti fjöldinn er yfir sumartímann.
Við fögnum stolt fjölbreytileika starfsfólks og hjá okkur hefur unnið og starfar nú fjöldi fólks af mismunandi þjóðernum, kynþáttum, kynhneigð og með ólíkan menningarlegan bakgrunn.
Starfsmannastjóri og umsjónarmaður fasteigna
Lóðaþjónustan óskar eftir að ráða stundvísan, ábyrgðar- og metnaðarfullan einstakling til starfa sem mun sjá um utanumhald og ráðningar starfsfólks. Hann skal einnig annast fræðslustefnu og fræðslumál innan fyrirtækisins, auk þess að hafa yfir umsjón fasteigna fyrirtækisins og annað sem til fellur.
Athugið að viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst!
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast starfsmannamál,
starfsmannaráðningar,
starfsmannasamninga,
utanumhald veikindadaga og frís starfsfólks,
annast samskipti við birgja, þrifaþjónustu og mötuneyti fyrirtækisins.
Utanumhald fata- og verkfæralagers.
Halda öryggis- og skyndihjálparnámskeið, starfsmannaferðir og hópefli.
Halda öryggis- og skyndihjálparnámskeið, starfsmannaferðir og hópefli.
Umsjón með vefsíðu og facebook síðu fyrirtækisins.
Útvegun og lagerhald vinnufatnaðar, öryggisbúnaðar o.fl.
Útvegun og lagerhald vinnufatnaðar, öryggisbúnaðar o.fl.
Annast umsjón fasteigna fyrirtækisins og annað sem til fellur á skrifstofu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Er skipulagður,
Lipur í samskiptum,
Hefur frumkvæði,
Ábyrgðarfullur,
Hefur góða tölvukunnáttu,
Með bílpróf,
Talar góða íslensku og ensku,
25 ára eða eldri,
Hefur metnað til að gera alltaf betur,
Það er kostur að hafa menntun sem nýtist í starfi.
Fríðindi í starfi
Rætt um í viðtali
Auglýsing birt10. janúar 2025
Umsóknarfrestur31. janúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Enska
Mjög góðNauðsyn
Staðsetning
Eirhöfði 12, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
MannauðsstjórnunMannleg samskiptiStarfsmannahald
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)