
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon er nýlegur baðstaður og veitingastaður í hjarta Suðurlands, við hina glæsilegu Iðubrú sem liggur yfir Hvítá við byggðina í Laugarási. Baðstaðurinn er hannaður þannig að hann fellur á fullkominn hátt inn í landslagið og veitir gestum einstaka upplifun með baðlóni á tveimur hæðum. Á útisvæði eru tvær sánur, útisturtur, kaldur pottur og heitur pottur í skógarrjóðri, sem býður upp á einstaka upplifun kyrrðar og náttúru.
Mikilvægur þáttur í töfrum Laugarás Lagoon er veitingastaðurinn Ylja þar sem matreiðslumaðurinn Gísli Matt fer fyrir. Ylja býður upp á fjölbreyttan, heilnæman mat úr afurðum frá bændum í nágrenni staðarins, þá ekki síst hið ljúffenga grænmeti sem svæðið er þekkt fyrir.
Laugarás Lagoon is a new bathing destination in the heart of South Iceland, located by the magnificent bridge that spans the Hvítá River near the settlement of Laugarás. The lagoon is designed to blend seamlessly with the surrounding landscape, offering guests a unique experience with a two-level bathing area and an exceptional outdoor space.
An important part of the charm of Laugarás Lagoon is the Ylja restaurant, led by chef Gísli Matthías Auðunsson. Ylja offers a diverse and wholesome menu featuring local produce from nearby farms, with particular emphasis on the delicious vegetables for which the region is renowned.

Starfsmaður umhirðu og fasteignaumsjónar
Viltu taka þátt í að skapa notalegt og vel við haldið umhverfi fyrir gesti okkar?
Í Laugarás Lagoon leggjum við metnað í að skapa notalegt og vel við haldið umhverfi fyrir gesti okkar. Hreinlæti, umhirða og góð umgengni eru mikilvægur hluti af þeirri upplifun. Nú leitum við að einstaklingi sem vill taka þátt í því mikilvæga verkefni.
Um er að ræða fjölbreytt og sjálfstætt starf þar sem umhirða laugarsvæðis, fasteignaumsjón og almennur rekstur fara saman. Starfið felur bæði í sér verkefni sem unnin eru þegar aðstaðan er lokuð gestum og verkefni yfir daginn. Vinnutími og vaktaskipulag eru sveigjanleg og ákveðin í samráði við þann sem ráðinn verður.
Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Regluleg þrif, umhirða og eftirlit með laugarsvæði og tengdri aðstöðu.
- Aðstoð við daglegan rekstur laugarsvæðis og almenna fasteignaumsjón.
- Framkvæmd minniháttar viðhalds- og viðgerðarverkefna, ásamt tilkynningu um stærri viðhaldsþörf.
- Eftirlit með húsnæði, búnaði og tæknikerfum.
- Tryggja að aðstaðan sé ávallt hrein, vel við haldin og tilbúin til að taka á móti gestum.
- Umsjón með verkfærum og birgðum
- Tryggja að öryggis- og heilbrigðisreglum sé fylgt
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi sem
- Er samviskusamur, vandvirkur og hefur gott auga fyrir smáatriðum.
- Getur unnið sjálfstætt og skipulagt vinnu sína vel.
- Sýnir frumkvæði og ábyrgð í starfi.
- Hefur reynslu af viðhaldi, fasteignaumsjón, þrifum eða sambærilegum störfum (kostur en ekki skilyrði).
- Hefur jákvætt viðmót og leggur metnað í vel unnin störf.
- Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi
- Áreiðanleiki, stundvísi og jákvætt viðmót
- Líkamleg færni til að sinna fjölbreyttum og praktískum verkefnum
- Grunnþekking á einföldum viðgerðum og notkun verkfæra er kostur
Fríðindi í starfi
Við bjóðum:
- Fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf í einstöku vinnuumhverfi.
- Sveigjanlegt ráðningarform og vaktaskipulag sem er ákveðið í samráði við þann sem ráðinn verður.
- Möguleika á að aðlaga starfshlutfall og vinnufyrirkomulag eftir aðstæðum.
- Tækifæri til að verða hluti af metnaðarfullum vinnustað á Suðurlandi þar sem gæði, samvinna og fagmennska eru í fyrirrúmi.
- Líflegt starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar
- Aðgang að baðlóninu sem hluta af starfskjörum
- Afslætti af vörum og þjónustu Laugarás Lagoon
Auglýsing birt28. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaValkvætt
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Laugarás Lagoon, Skálholtsvegur 1, 806 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaHandlagniHreint sakavottorðÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðVaktaskipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Cleaning Camper Vans
Campeasy

Starfsmaður í vöruhúsi
Fraktlausnir ehf

Meiraprófbílstjóri í vörudreifingu á höfuðborgarsvæðinu og út á land
Fraktlausnir ehf.

Starfsmaður í vöruhús
Raftækjalagerinn

Starfsmaður í Vöruhús - Helgarstarf
Raftækjalagerinn

Housekeeping part time 70-80% - SOUTH ICELAND
Panorama Glass Lodge

Ræstitæknir í Borgarleikhúsinu
Borgarleikhúsið

Iðnaðarmaður í Þjónustumiðstöð
Seltjarnarnesbær

Hópstjóri vörumóttöku
BAUHAUS slhf.

Fjöllbreytt störf við ræstingar á Akureyri
Hreint ehf

Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Landspítali

Starfsmaður á lager skurðstofa í Fossvogi
Landspítali