

Starfsmaður óskast á hæfingarstöð
Starfsmaður óskast á vinnustað fyrir fatlað fólk í Kópavogi
Velferðarsvið Kópavogsbæjar óskar eftir starfsmanni til starfa í dagvinnu á hæfingarstöð fyrir fatlað fólk í Kópavogi.
Hæfingarstöðin býður uppá dagþjónustu, starfs- og vinnuþjálfun fyrir fatlaða einstaklinga. Vinnustaðurinn leitar að drífandi og áhugasömu starfsfólki til að takast á við fjölbreytt verkefni í sveigjanlegu og skemmtilegu vinnuumhverfi.
Unnið er í skipulagðri hópavinnu og einstaklingsmiðaðri þjálfun. Ýmis þróunarverkefni eru í gangi, til að mynda er vilji til að efla listasmiðju og verkefni tengd sköpun af ýmsu tagi.
Starfshlutfall og ráðningartími
- Um er að ræða 100 % stöðu í dagvinnu.
- Vinnutími er frá kl. 8:00 – 16:00.
- Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fyrir 15.12.2023
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Framtakssemi og jákvæðni í starfi
- Starfið getur verið líkamlega krefjandi
- Góð íslenskukunnátta
- Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
Helstu verkefni
- Þátttaka í faglegu starfi
- Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við notendur í starfi
- Þátttaka í starfsþjálfun fatlaðs fólks
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá velferðarsviði Kópavogs þurfa að skila sakavottorði eða veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.













