Byko
Byko
Byko

Starfsmaður í vöruhúsi - BYKO Miðhrauni

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í nýtt vöruhús að Miðhrauni.

Nýtt vöruhús BYKO mun vera byggt upp með nýjustu tækni í vöruhúsarekstri sem kallast Autostore. Hér er því einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu á framsæknum vöruhúsaresktri sem fullnýtir möguleika tækninnar í átt að aukinni skilvirkni.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Við leitum að starfsmanni með:

  • Ríka þjónustulund
  • Skipulagshæfni
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Lyftarapróf, kostur
  • Íslenskukunnátta, kostur

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tiltekt og lestun bíla ásamt því að tryggja að sendingar fari úr húsi á réttum tíma
  • Móttaka og frágangur á sendingum
  • Losun og frágangur á vörum úr gámum
  • Tínsla á pöntunum ásamt því að tryggja að allar vörur séu afgreiðslu- og söluhæfar
  • Önnur tilfallandi verkefni

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Umsóknarfrestur er til og með 20. október en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

Allar nánari upplýsingar veitir Steinn Guðni Einarsson, (steinn@byko.is) rekstrarstjóri.

Auglýsing birt11. október 2024
Umsóknarfrestur20. október 2024
Staðsetning
Miðhraun 24, 210 Garðabæ
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar