Bako Verslunartækni
Bako Verslunartækni

STARFSMAÐUR Í VÖRUHÚSI

STARFSMAÐUR Í VÖRUHÚSI – 100% STARF

Bako Verslunartækni leitar að áreiðanlegum, skipulögðum og jákvæðum starfsmanni til að bætast í öflugt teymi okkar í vöruhúsi. Starfið hentar bæði konum og körlum sem hafa áhuga á fjölbreyttum verkefnum í lifandi og skipulögðu starfsumhverfi þar sem fagmennska, þjónustulund og góð samvinna eru í fyrirrúmi.

Um Bako Verslunartækni

Bako Verslunartækni er traust og rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum fyrir verslanir, vöruhús, veitingastaði, hótel, bari og bakarí, svo eitthvað sé nefnt. Við leggjum áherslu á faglega þjónustu, áreiðanleika og jákvætt starfsumhverfi þar sem starfsfólk gegnir lykilhlutverki í velgengni fyrirtækisins.

Vinnutími og kjör

  • Vinnutími: kl. 08:00–16:00 alla virka daga. Lokað um helgar
  • Niðurgreiddur heitur hádegismatur fyrir starfsfólk

Helstu verkefni

  • Tiltekt og frágangur á vörum í pantanir
  • Afgreiðsla pantana til viðskiptavina
  • Móttaka, skráning og frágangur vara
  • Eftirfylgni með útkeyrslupöntunum, vöruflæði og afhendingum
  • Samskipti og samvinna við bílstjóra vegna afhendinga og akstursleiða
  • Samskipti við viðskiptavini varðandi afhendingar, stöðu pantana og þjónustu
  • Almenn vöruhússtörf og önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Jákvæðni, lipurð og rík þjónustulund
  • Stundvísi, snyrtimennska og góð umgengni
  • Góð tölvukunnátta; reynsla af BC og vöruhúsakerfum er kostur
  • Frumkvæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
  • Umbótamiðuð hugsun og drifkraftur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Hreint sakavottorð og ökuréttindi

Umsókn

Ef þú ert ábyrgur, jákvæður og skipulagður einstaklingur sem hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum og samskiptum við fólk, þá hvetjum við þig til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2026.

Auglýsing birt6. júlí 2026
Umsóknarfrestur1. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dragháls 24
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar