Kvarnir ehf
Kvarnir ehf
Kvarnir ehf

Starfsmaður í vöruhús / lager

Við leitum að áreiðanlegum og duglegum einstaklingi í vöruhús/lager hjá Kvörnum ehf.

Starfið er fjölbreytt verklegt starf þar sem unnið er með móttöku, frágang, undirbúning pantana og almennt skipulag á lager. Viðkomandi þarf að geta unnið skipulega, fylgt fyrirmælum og tekið þátt í daglegum verkefnum með góðu viðhorfi.

Við leggjum mikla áherslu á stundvísi, góða mætingu, ábyrgð og góða umgengni um búnað og vinnusvæði. Starfið hentar einstaklingi sem vill vinna í praktísku og lifandi vinnuumhverfi, getur unnið bæði sjálfstætt og með öðrum og er tilbúinn að læra.

Bílpróf er skilyrði. Lyftararéttindi eru skilyrði, en ef umsækjandi er ekki með lyftararéttindi þarf hann að vera tilbúinn að sækja þau fljótlega, á eigin kostnað, eftir ráðningu í samráði við fyrirtækið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka, frágangur og afhending vara og búnaðar
  • Samtínsla og undirbúningur pantana
  • Talning, merkingar og almennt lagerhald
  • Þrif, skipulag og umgengni á vinnusvæði
  • Meðhöndlun verkfæra, búnaðar og efnis
  • Akstur og sendiferðir eftir þörfum
  • Aðstoð við almenna verklega vinnu eftir þörfum
  • Að fylgja öryggisreglum og fyrirmælum yfirmanns
Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Bílpróf er skilyrði
  • Lyftararéttindi / vinnuvélaréttindi eru mikill kostur
  • Ef umsækjandi er ekki með lyftararéttindi þarf hann að vera tilbúinn að sækja þau fljótlega eftir ráðningu, í samráði við fyrirtækið
  • Stundvísi og góð mæting
  • Góð vinnusemi og jákvætt viðhorf
  • Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
  • Geta til að fylgja fyrirmælum og vinna skipulega
  • Líkamlegt hreysti, þar sem starfið getur verið líkamlegt
  • Reynsla af lager-, byggingar-, stillinga- eða verklegri vinnu er kostur en ekki skilyrði
  • Íslenska eða enska, nægilega góð til að skilja fyrirmæli og öryggisreglur
Auglýsing birt27. júlí 2026
Umsóknarfrestur20. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Álfhella 9, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.ÚtkeyrslaPathCreated with Sketch.Vöruflutningar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar