Byko
Byko
Byko

Starfsmaður í talningateymi

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í nýtt sameinað teymi sítalninga á höfuðborgarsvæðinu. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Teymið sinnir sítalningum í verslun Breidd, verslun Granda, Lagnaverslun og Fagverslun Selhellu. Einnig sinnir teymið stuðningi við starfsfólk sem sinnir talningum utan höfuðborgarsvæðisins.

Vinnutími: alla virka daga frá kl. 08:00-16:15. Vinnutími getur verið breytilegur milli daga innan vikunnar m.t.t. verkefna.

Við leitum að einstaklingi með:

  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Getu til að vinna sjálfstætt
  • Ríka þjónustulund
  • Íslenskukunnáttu í ræðu og riti
  • Góða tölvukunnáttu og hæfni til að tileinka sér notkun á nýjum kerfum
  • Reynslu af utanumhaldi með birgðum og talningum, kostur

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Framkvæmd sítalninga
  • Eftirvinnsla talninga s.s. uppfæra birgðastöðu
  • Önnur verkefni

Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Björnsdóttir, hópstjóri sítalninga ([email protected]).

Auglýsing birt22. janúar 2026
Umsóknarfrestur2. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar