

Afleysingar og helgarvinna í gleraugnaverslun Eyesland Kringlunni
Eyesland gleraugnaverslun leitar að jákvæðum og góðum starfsmanni í verslun sína í Kringlunni í afleysingar í sumar. Viðkomandi væri síðan með vinnu um helgar í vetur.
Starfið felst í almennri afgreiðslu og söluráðgjöf til viðskiptavina um kaup á vörum verslunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi og skemmtilegt starf.
Hæfniskröfur:
· Reynsla af verslunarstörfum
· Rík þjónustulund
· Jákvæðni og gott viðmót
· Vera fljót/ur að læra
· Hafa áhuga á gleraugum og augnheilbrigði
· Íslensku og enskukunnátta er skilyrði
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar í gegnum [email protected]
Almenn verslunarstörf, s.s. sölumennska, vöruþekking og vöruframsetning, áfylling, þrif í verslun, kassauppgjör o.fl.
Starfsmaður þarf að hafa lokið menntaskóla
ýmis fríindi
Enska
Íslenska










