Starfsmaður í Frístundaklúbbinn Kotið
Frístundaklúbburinn Kotið leitar að sjálfstæðum einstakling með góða færni í mannlegum samskiptum til að vinna í lengdri viðveru fyrir fötluð grunnskólabörn í 5. - 10. bekk í vetur. Starfið felst í tómstunda- og dægradvöl með fötluðum grunnskólabörnum á aldrinum 10-16 ára. Markmið lengdu viðverunnar er að efla félagslegan þroska þátttakenda og stuðla að virkni og félagslegri þátttöku ungmenna í frístundum. Í starfinu er nærumhverfið notað til að þjálfa ungmennin í sjálfstæði, félagsfærni og samskiptafærni. Þátttakendunum er mætt á þeirra grundvelli og þeim veitt þjónusta við hæfi.
Í boði er allt að 50% starf. Vinnutími er 12:45-16:15
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Tómstunda- og dægradvöl með fötluðum grunnskólabörnum á aldrinum 10-16 ára.
- Einstaklingsmiðu þjónusta
- Umbætur og þróun
- Upplýsingarmiðlun
- Samskipti og samstarf við starfsfólk, þátttakendur, foreldra, skóla og hinar ýmsu stofnanir sem tengjast starfseminni
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Reynsla í starfi með fötluðum er kostur
- Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Hreint sakavottorð skilyrði