Kaldvík hf.
Kaldvík hf.
Kaldvík hf.

Starfsmaður í fiskeldi á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði

Kaldvík leitar að starfsfólki í almenn fiskeldisstörf við eldisstöðvar fyrirtækisins á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði.

Við leitum að duglegum, samviskusömum og jákvæðum liðsauka til að vinna með okkur að fjölbreyttum verkefnum sem fiskeldisfólk sinnir á Austfjörðum.

Starfið felur í sér að sinna almennum eldisstörfum, taka þátt í að ná þeim líffræðilegu og fjárhagslegu markmiðum sem sett eru og jafnframt tryggja öryggi og góða dýravelferð.

Vinnutími er 7 dagar vinna og 7 dagar frí á 12 klukkustunda vöktum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinna almennum eldisstörfum
  • Eftirlit með búnaði og bátum
  • Skráningar og skýrslugerð
  • Tryggja öryggi starfsfólks og velferð fisks
  • Tryggja góða umhirðu á vinnustað

Starfsmaður getur einnig þurft að sinna öðrum verkefnum eftir þörfum, svo sem:

  • sækja námskeið
  • aðstoða verktaka
  • aðstoða nýliða
  • hjálpa til á ólíkum starfstöðvum félagsins
  • og önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • 15 metra skipstjórnarréttindi eða smáskipavélarvarðaréttindi er kostur
  • Reynsla, þekking og skilningur á fiskeldi er kostur
  • Frumkvæði, áhuga og metnað í starfi
  • Góða samskiptahæfni og jákvætt hugarfar
  • Getu til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
Fríðindi í starfi
  • Fæði
  • Heilsu- og menntunarstyrkir
  • Góð vinnuaðstaða og tækifæri til útivistar
  • Fjölskylduvænn vinnustaður
Um Kaldvík

Kaldvík er eitt af leiðandi laxeldisfyrirtækjum Íslands og rekur samþætta virðiskeðju allt frá  seiðaframleiðslu, eldi og vinnslu. 

Aðalstarfsemi fyrirtækisins er á Austfjörðum, en Kaldvík er með starfsemi í fimm sveitarfélögum og starfsstöðvar á Suðurlandi, Norðurlandi og Austfjörðum, alls á ellefu stöðum á Íslandi.

Um 200 hæfir starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu á öllum stigum virðiskeðjunnar. Hjá okkur starfar öflugur og fjölbreyttur hópur fólks af ólíkum kynjum og þjóðernum, sem vinnur saman að því að framleiða fyrsta flokks lax fyrir viðskiptavini um allan heim.

Kaldvík framleiðir árlega lax sem jafngildir yfir 120 milljónum máltíða, og leggur mikla áherslu á sjálfbærni, gæði og samfélagslega ábyrgð í allri sinni starfsemi.

Kaldvík hf. er skráð á Euronext Growth í Osló og Nasdaq First North Growth Market á Íslandi, sem endurspeglar metnað fyrirtækisins fyrir vöxt, gagnsæi og ábyrga starfshætti.

Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur26. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hafnargata 7, 730 Reyðarfjörður
Hafnargata 29, 750 Fáskrúðsfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar