
Garri
Garri er öflugt þjónustufyrirtæki í innflutningi á gæða matvörum, umbúðum og hreinlætislausnum fyrir veitingarekstur, hótel, fyrirtæki og stofnanir.
Við höfum ástríðu fyrir okkar starfi og erum vakandi fyrir nýjungum á markaði, vöruframboði og tæknilausnum. Við leggjum áherslu á sjálfbærni, stöðugar umbætur, ábyrga stjórnarhætti og eflingu mannauðs, með gildi Garra að leiðarljósi. Hjá Garra starfa um 100 manns.

Starfsmaður í dreifingarteymi Garra
Vilt þú vinna í einu öflugasta dreifingarteymi landsins?
Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem nýtur þess að vinna í fjölbreyttu umhverfi, hefur metnað fyrir að veita framúrskarandi þjónustu og vill taka þátt í að einfalda daginn fyrir viðskiptavini og samstarfsfólk.
Hjá okkur færðu að starfa í öflugu og stuðningsríku umhverfi þar sem heiðarleiki, áreiðanleiki og ástríða eru höfð að leiðarljósi — og þar sem samvinna, gleði og fagmennska fara saman.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í daglegri dreifingu á vörum Garra.
- Þróun og vinna með Zendera.
- Þátttaka, þróun og eftirfylgni verklags í dreifingu.
- Þverfagleg samskipti við aðrar deildir Garra.
- Kynna sér og þekkja allar vörur Garra vel.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fagleg framkoma og rík þjónustulund.
- Sterk samskipta,- samstarfs- og leiðtogahæfni.
- Áhugi, metnaður og áreiðanleiki í starfi.
- Skipulagshæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvæðni.
- Góð færni í íslensku og ensku skilyrði.
Fríðindi í starfi
- Afsláttur af vörum Garra.
- Íþrótta- og sálfræðistyrkur.
- Árleg heilsufarsmæling og ráðgjöf.
- Mötuneyti með hollum og fjölbreyttum mat.
- Frábærir samstarfsfélagar & öflugt starfsmannafélag.
Auglýsing birt2. júní 2026
Umsóknarfrestur9. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hádegismóar 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðLagerstörfSkipulagTeymisvinnaVöruflutningarÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Afgreiðsla - Lager Vöruhús
Vatnsvirkinn ehf

Lagerstarfsmaður í Bolungarvík
Arna

Höfuðborgarsvæðið - áfyllingar
Vínbúðin

Bílstjóri / Lestunarmaður
Vaðvík

Warehouse employee - lagerstarfsmaður
Vinnupallar

Útkeyrsla og lager
Ofar

Sumarstarf í verslun á Akureyri
Þór hf

Lagerstarf
Ísfell

Sumarstarf í útibúi Olís á Akureyri
Olís ehf.

Hópstjóri vörumóttöku
BAUHAUS slhf.

Warehouse Stocker Vacancy (Merch)
Costco Wholesale

Join our team for the summer: kitchen workers, bartender or barista.......
SSP Iceland