
Skjól hjúkrunarheimili
Skjól er rótgróið, faglegt og öflugt hjúkrunarheimili með reyndu og góðu starfsfólki. Skjól var fyrsta hjúkrunarheimilið í Reykjavík sem byggt var frá grunni með hjúkrunarrými eingöngu. Í gegnum árin hafa ýmsar breytingar átt sér stað og áskorun hjúkrunarheimila á hverjum tíma er að standast tímans tönn, fylgjast með rannsóknum, uppfæra starfsaðferðir og leiðir í þjónustu og umönnun íbúa og hafa alltaf virðingu og fagmennsku að leiðarljósi. Laugaskjól, sambýli fyrir minnissjúka er rekið undir stjórn deildar á 4. hæð heimilisins.
Hjá okkur starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks með fjölbreytta menntun og starfsreynslu að baki.
Ef þú vilt bætast í teymið okkar, sendu okkur þá umsókn !

Starfsmaður í dagþjálfun - Maríuhús
Maríuhús stækkar og fær til sín fleiri skjólstæðinga, því leitum við eftir öflugum og jákvæðum einstakling í fullt starf. Um er að ræða framtíðarstarf á dagvinnutíma.
Maríuhús er sérhæfð dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma sem staðsett er í húsnæði Skjóls við Kleppsveg 64 í Reykjavík.
Markmið deildarinnar er að rjúfa félagslega einangrun ásamt því að viðhalda sjálfstæði einstaklingsins eins lengi og kostur er með því að styrkja líkamlega og vitsmunalega hæfni og stuðla þannig að því að hann geti búið sem lengst heima
Þjónustan er sniðin að þörfum, áhuga og getu einstaklinga og er sveigjanleiki lykilhugtak í þjónustunni. Mikið er lagt upp úr góðum anda og afslöppuðu en virku andrúmslofti.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Jákvæðni og góð samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta
- Frumkvæði og sköpunargleði
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en þó ekki nauðsynleg
Auglýsing birt28. nóvember 2025
Umsóknarfrestur7. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kleppsvegur 64, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSamviskusemiSveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Skemmtilegt starf í Keflavík!
NPA miðstöðin

Reykjanes: Starfsmaður í sorphirðu/garbage collector
Íslenska gámafélagið ehf.

Okkur vantar starfsfólk í aðhlynningu
Kjarkur endurhæfing

Starfsfólk í aðhlynningu óskast til starfa á Patreksfirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Ævintýragjarnt aðstoðarfólk óskast í hlutastarf
NPA miðstöðin

Spennandi starf fyrir iðjuþjálfa - Skjól hjúkrunarheimili og Maríuhús dagþjálfun
Skjól hjúkrunarheimili

Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin

Umönnun framtíðarstarf - Boðaþing
Hrafnista

Leikskólinn Stakkaborg - mötuneyti
Skólamatur

Hópstjóri í Klettabæ
Klettabær

Aðstoðarmanneskja óskast á tannlæknastofu
Tannlæknar Vegmúla

Deildarstjóri hjá Klettabæ
Klettabær