Starfsmaður í barnavernd hjá sveitarfélaginu Húnabyggð
Löng starfslýsing:
Húnabyggð auglýsir eftir starfsmanni í 100% stöðu í barnavernd. Starfið er laust frá 1.júní 2026. Unnið er í dagvinnu en starfsmaður tekur reglulegar bakvaktir í barnavernd.
Húnabyggð er eitt þeirra sveitarfélaga sem standa að Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands. Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag í Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands og ber ábyrgð á barnavernd í nánu samstarfi við aðildarsveitarfélögin. Önnur sveitarfélög sem koma að barnaverndarþjónustusvæðinu eru Skagaströnd og Húnaþing vestra. Húnabyggð sér einnig um vinnslu og eftirfylgni með barnaverndarmálum á Skagaströnd.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni eru meðferð og vinnsla barnaverndarmála og eftirfylgni þeirra. Lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf, heildstæða og samþætta þjónustu. Málstjórn í samþættum málum er hluti af starfinu og stjórnun og/eða þátttaka í stuðningsteymum í þjónustu í þágu farsældar barna. Starfsmaður starfar náið með öðrum starfsmönnum Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands, öðrum stofnunum sveitarfélaganna og sérfræðingum félagsþjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntunarkröfur:
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða önnur tengd háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
Hæfniskröfur:
- Almenn ökuréttindi eru skilyrði.
- Farsæl reynsla af starfi við barnavernd.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af ráðgjöf við einstaklinga og hópa sem eiga í félagslegum eða persónulegum vanda, ásamt því að hafa þekkingu á félagslegri þjónustu.
- Leitað er að einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfni og ríka ábyrgðartilfinningu.
- Umsækjandi þarf að vera tilbúinn til að tileinka ser nýja starfshætti og sýna jákvæðni og frumkvæði, hafa metnað í starfi og geta unnið sjálfstætt og skipulega.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
- Hreint sakavottorð.
Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Öll kyn eru hvött til að sækja um stöðuna.
Umsóknarfrestur er til og með 1.júní 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sara Lind Kristjánsdóttir, [email protected], Félagsmálastjóri velferðarsviðs Húnabyggðar í síma 865-4863

Íslenska
Enska