
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Starfsmaður í áhaldahús
Áhaldahús leitar að starfsmanni í framtíðarstarf
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi.
Erum við að leita af þér?
Menntunar- og hæfniskröfur
Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
Skilyrði er að starfsmaður hafi náð 18 ára aldri
Skilyrði er að starfsmaður hafi ökuréttindi
Vinnuvélaréttindi eða iðnmenntun eru æskileg en ekki skilyrði
Jákvæðni, frumkvæði, áhugi og metnaður
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í vinnu við viðhald vatnsveitna, sorpmála, gatnakerfa og fráveitu með leiðsögn verkstjóra áhaldahússins.
Einnig felst í starfinu sláttur, umhirðuverkefni á opnum svæðum, almennt viðhald og ýmsar verklegar framkvæmdir á vegum áhaldahúss.
Auglýsing birt20. ágúst 2021
Umsóknarfrestur1. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)


