Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon

Starfsmaður Fasteignaumsjónar/ Facility Support Staff

Við erum að leita að áreiðanlegum og handlögnum einstaklingi til starfa við fasteignaumsjón. Starfið felur í sér að taka þátt í daglegum rekstri og viðhaldi fasteigna í góðu samstarfi við umsjónarmann fasteigna, með það að markmiði að tryggja að aðstaða, búnaður og umhverfi séu örugg og í góðu standi. Starfið felur í sér reglulega umhirðu laugarsvæðis og útisvæða, ásamt einfaldri garðyrkju, svo sem slátt, snyrtingu, hreinsun og almennt viðhald lóða.

Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst. Um er að ræða 100% sumarstarf með möguleika á framlengingu.

Vinnutími:

  • Virkir dagar: 07:00–15:00
  • Aðra hverja helgi: 07:00–11:00
  • Að auki er gert ráð fyrir stökum kvöld og næturvöktum
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Regluleg þrif, eftirlit og viðhald laugarsvæðis
  • Aðstoð við daglegan rekstur laugarsvæðis og viðhald fasteigna
  • Framkvæmd minniháttar viðgerða og tilkynning um stærri verkefni
  • Eftirlit með húsnæði, búnaði og tæknikerfum
  • Aðstoð við þrif, sorphirðu og almennt viðhald
  • Umsjón með verkfærum og birgðum
  • Einföld garðyrkja og umhirða útisvæða (t.d. sláttur, snyrting, hreinsun)
  • Tryggja að öryggis- og heilbrigðisreglum sé fylgt
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af umsjón með húsnæði, tækjum eða búnaði er kostur
  • Góð hæfni til að vinna sjálfstætt, sýna frumkvæði og útsjónarsemi
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi
  • Áreiðanleiki, stundvísi og jákvætt viðmót
  • Líkamleg færni til að sinna fjölbreyttum og praktískum verkefnum
  • Grunnþekking á einföldum viðgerðum og notkun verkfæra er kostur
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að taka þátt í að skapa glænýjan vinnustað í einstöku umhverfi á Suðurlandi
  • Tækifæri til starfsþróunar
  • Líflegt starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar
  • Aðgang að baðlóninu sem hluta af starfskjörum
  • Afslætti af vörum og þjónustu Laugarás Lagoon
Auglýsing birt7. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Laugarás Lagoon, Skálholtsvegur 1, 806 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar