
ICEWEAR
Icewear er íslenskt útivistarvörumerki og á sögu allt aftur til ársins 1972.
Vörulína Icewear er mjög stór og samanstendur af fjölbreyttu úrvali af útivistarfatnaði, ullarvörum og helstu fylgihlutum til útivistar fyrir bæði börn og fullorðna.
Allar vörur Icewear eru hannaðar á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður.
Icewear leggur ávalt mikið upp úr sanngjörnu verði, fjölbreyttu úrvali og góðri þjónustu enda er útivist fyrir alla.
Verslanir Icewear eru í dag 23 talsins og eru staðsettar um land allt undir merkjum Icewear, Icewear Magasín og Icemart. Þá er vefverslun Icewear mjög vinsæl og selur út um allan heim.
Sjá vefsíðu Icewear: www.icewear.is
Helstu vöruflokkar Icewear eru útivistarfatnaður, ullarvörur og minjagripir.
Verslanir Icewear eru staðsettar í Reykjavík, Akureyri, Kópavogi, Vestmannaeyjum, Þingvöllum og við Goðafoss og í Vík í Mýrdal ásamt mjög öflugri vefverslun.
Fyrirtækið hefur verið ört vaxandi og hjá Icewear starfa í dag um 280 manns.
Gildi Icewear eru samskipti, metnaður, ánægja. Unnið er með þau i daglegum störfum og áhersla lögð á að skapa skemmtilegan og spennandi vinnustað.
Þín útivist Þín ánægja

Starfsmaður á saumastofu
Icewear óskar eftir að ráða starfsmann á saumastofu.
Leitast er eftir lausnamiðuðum og sjálfstæðum aðila til að sinna viðgerðum á fatnaði ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af almennum viðgerðum á fatnaði sem og reynslu af notkun saumavéla.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðgerðir á fatnaði ásamt öðrum tillfallandi verkefnum á saumastofu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af viðgerðum á fatnaði
- Reynsla og kunnátta á saumavélar
- Fagleg og nákvæm vinnubrögð
- Þjónustulund og góð hæfni í samskiptum og teymisvinnu
Auglýsing birt22. júlí 2025
Umsóknarfrestur10. ágúst 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Íshella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar