Starfsmaður á lager
Jarðboranir leita að traustum og öflugum aðila í lagerstarf og önnur tilfallandi verkefni á þjónustustöð félagsins í Álhellu í Hafnarfirði. Í starfinu felst meðal annars móttaka á vörum, vörumeðhöndlun og afgreiðslu á vörum.
Jarðboranir er leiðandi hátæknifyrirtæki á heimsvísu sem sérhæfir sig í djúpborunum eftir jarðhita. Félagið á og rekur flota hátæknibora og er með starfsemi víðsvegar um heiminn. Hjá Jarðborunum er lögð rík á hersla á sterka öryggismenningu og framúrskarandi starfsumhverfi.
Skráning í birgðakerfi
Aðstoð við innkaup
Þjónusta við boráhafnir
Afgreiðsla og móttaka á vörum
Önnur tilfallandi verkefni á þjónustustöð
Reynsla af lagerstörfum æskileg
Þjónustulund
Almenn tölvukunnátta
Bílpróf er skilyrði
Meirapróf og lyftararéttindi er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Fæði í vinnutíma
Heilsustyrkur