Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, rafgeyma, hleðslukrana, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla, gíra og skrúfubúnaðar. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Dunlop, Sava, Fulda, og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, ZF gírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Scana Volda skrúfu- og gírbúnaður, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Hubtex lyftarar, Hawker neyslurafgeymar, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.
Starfsmaður á fjármálasvið – starf með Háskóla
Klettur leitar eftir starfsmanni á fjármálasviði í hlutastarf með skóla og væri vinnutíminn eftir samkomulagi. Í boði er síðan að fara í fullt starf yfir sumartímann.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skráning fjárhagsbókhalds
Afstemmingar
Gjaldkerastörf
Þáttaka í umbóta og framþróunarverkefnum
Önnur störf sem tilheyra fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af vinnu við bókhald og aftemmingar kostur en ekki skilyrði
Talnagleggni, greiningarhæfni, nákvæmni og vandvirkni
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur matur.
- Sterkt og virkt starfsmannafélag.
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins.
Auglýsing birt10. janúar 2025
Umsóknarfrestur28. janúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 8-10 8R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSjálfstæð vinnubrögðVandvirkni
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Skrifstofustjóri hjá Kassaleigunni
Kassaleigan
Sölufulltrúi
Cargow Thorship
Við leitum að liðsauka í Fjallabyggð
Arion banki
Þjónustustjóri
ÍAV
Sérfræðingur í innflutningi
Ísfell
Húsnæðisumsjón og rekstur
Kvika banki hf.
Parlogis leitar að þjónustufulltrúa
Parlogis
Sérfræðingur
Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið
Starfsmaður við uppmælingakerfi húsasmiða
Byggiðn- Félag byggingamanna
Starfsmaður á skrifstofu Byggiðnar á Akureyri
Byggiðn- Félag byggingamanna
Sérfræðingur í flugrekstrar- og skírteinadeild
Samgöngustofa
Starfsmaður í notendaþjónustu upplýsingatæknideildar
Samgöngustofa