

Starfskraftur óskast í VoR teymi Reykjavíkurborgar
Vesturmiðstöð leitar að starfsmanni í Vettvangs- og ráðgjafateymi (VoR-teymið innan málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir). Um fastráðningu er að ræða í 100% starfshlutfalli í vaktavinnu. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar (VoR) aðstoðar heimilislaust fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir. VoR veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og stuðning á vettvangi.
VoR teymið veitir ákveðnum hópi fólks í sjálfstæðri búsetu stuðning og ráðgjöf í anda hugmyndafræðinnar um Húsnæði fyrst. Í þjónustunni er tekið mið af skaðaminnkandi nálgun til að draga úr skaðlegum áhrifum jaðarsetningar og draga úr skaðsemi og áhættu sem geta fylgt vímuefnanotkun. Einnig er unnið eftir batahugmyndafræði, áfallamiðaðri nálgun og notaðar aðferðir áhugahvetjandi samtals (Motivational Interviewing).
- Veita jaðarsettum hópi fólks stuðning í sjálfstæðri búsetu og ráðgjöf undir formerkjum Húsnæði fyrst hugmyndafræðinnar.
- Virkt notendasamráð – notandi sérfræðingurinn.
- Veita íbúum/notendum heildstæða þjónustu í nærumhverfi sínu samkvæmt einstaklingsáætlun.
- Stuðningur til sjálfshjálpar og samfélagslegrar þátttöku og virkni.
- Stuðningur við samskipti við stofnanir.
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæri fyrir íbúa.
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með jaðarsettum einstaklingum með fjölþættan vanda.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Þekking eða áhugi á skaðaminnkandi nálgun, áfallamiðaðri nálgun og batahugmyndafræði.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni og frumkvæði.
- Sveigjanleiki, þolinmæði og umburðarlyndi.
- Íslenskukunnátta B2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Styttri vinnuvikunnar
- Samgöngu- og heilsuræktarstyrkir
- Sund- og menningarkort


























