Starfskraftur í eldhús/Matráður/Ráðskona
Hlíðabær er dagþjálfun fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóm. Daglega mæta 22 einstaklingar til að njóta samveru og viðhalda færni.
Í Hlíðabæ er boðið upp á hjúkrunar- og læknisþjónustu ásamt fjölbreyttri virkni í hópastarfi.
Áhersla er á nærandi og jákvætt umhverfi og markmiðið er að auka lífsgæði skjólstæðinga og fjölskyldna þeirra. Hugað er að líkamlegum, andlegum og félagslegum þáttum.
Opið er virka daga frá kl 8-16.
Hlíðabær er í fallegu einbýlishúsi í miðbæ Reykjavíkur sem býður upp á heimilislegt umhverfi. Boðið er upp á morgun- og hádegismat, ásamt síðdegiskaffi. Hádegismatur kemur tilbúinn í hús en að jafnaði er eldað og bakað 1x í viku.
Í Hlíðabæ starfar samheldinn og þverfaglegur hópur fólks.
Við erum að leita að ábyrgum og lausnamiðuðum einstaklingi með góða þjónustulund.
Starfshlutfall er samkomulagsatriði en þó minnst 50%.
- Ábyrgð á eldhúsi og matsal
- Útbúa morgunmat, framreiðsla hádegisverðar og síðdegishressingar
- Uppvask og frágangur
- Pantanir og samskipti við birgja í samráði við yfirmann
- Íslenskukunnátta er skilyrði
- Reynsla af starfi í mötuneyti eða eldhúsi er kostur
- Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
- Sveigjanleiki
- Ánægja af heimilisstörfum