

Starfskraftur á lager
Við hjá Olíudreifingu leitum að metnaðarfullum einstaklingi til liðs við okkur á lager fyrirtækisins í Reykjavík. Ef þú ert framsækinn og faglegur starfskraftur með góða samskiptahæfni þá erum við að leita að þér.
Um starfið
Starfið felur í sér fjölbreytt lagerstörf, meðal annars:
- Móttaka vöru á lager
- Vörumeðhöndlun
- Afgreiðsla vöru
- Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund, frumkvæði og góð samskiptahæfni
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
- Góð hæfni í íslensku er skilyrði
- Góð hæfni í ensku
- Góð almenn tölvuþekking
- Stundvísi og reglusemi
- Lyftararéttindi eru kostur
- Reynsla af lagerstörfum er kostur
- Reynsla af Dynamics 365 Business er kostur
Við bjóðum þér:
- Spennandi verkefni og tækifæri til að læra
- Vinnufatnað
- Niðurgreiddan hádegismat
- Íþróttastyrk
- Gleraugnastyrk
- Virkt starfsmannafélag
Við hlökkum til að fá umsóknina þína
Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2026. Nánari upplýsingar veitir Harpa Hrund Jóhannsdóttir, á mannauðssviði, ([email protected]).
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Um Olíudreifingu:
Olíudreifing er þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði orkumála. Hlutverk Olíudreifingar er að dreifa og halda utan um birgðir á fljótandi orkugjöfum. Félagið er nú þegar þátttakandi í orkuskiptum og er að undirbúa meðhöndlun rafeldsneytis.
Fyrirtækið rekur bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði. Einnig er rekið þjónustuverkstæði sem sinnir viðhaldi á raf- og vélbúnaði. Starfsfólk félagsins er um 130 talsins og starfar á starfsstöðvum víðsvegar um landið. Unnið er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum.
Nánari upplýsingar um Olíudreifingu ehf. má finna á www.odr.is.
Íslenska
Enska










