
Djúpavogsskóli
Djúpavogsskóli er einsetinn heildstæður skóli með um 80 nemendur í grunnskóla, úr dreifbýli og þéttbýli Djúpavogs. Í grunnskólanum er lögð mikil áhersla á samkennslu, samvinnu og þverfaglega vinnu nemenda og kennara. Mikil áhersla er lögð á að nýta hið stórkostlega umhverfi sem skólinn er staðsettur í, bæði við leik og störf. Hugrekki, virðing og samvinna eru einkunnarorð skólans og fléttast þau gildi á margþættan hátt inn í skólastarfið. Tónskóli Djúpavogs er hluti af Djúpavogsskóla og hann er starfræktur í skólanum.

Starfsfólk óskast í Djúpavogsskóla
Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli sem óskar annars vegar eftir umsjónarmanni yfir lengdri viðveru og hins vegar stuðningsfulltrúa á unglingastigi.
Um hlutastörf er að ræða en möguleiki er á að sameina störfin í heilt stöðugildi.
Ráðning er til eins árs með góðum möguleika á framtíðarstarfi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í skólabyrjun í ágúst 2021.
Umsjónarmaður yfir lengdri viðveru - helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnutími frá 13:00 - 16:00. Auk þess er gert ráð fyrir undirbúningstíma utan fastrar viðveru.
- Sér um gæslu á börnum í lengdri viðveru eftir hádegið.
- Skipuleggur og hefur umsjón með starfinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni og vera tilbúinn að vinna með öðrum m.a. í teymisstarfi.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Áhugi á að starfa með börnum og á auðvelt með að eiga samskipti við þau.
- Góð íslenskukunnátta í máli og riti.
Suðningsfulltrúi - helstu verkefni og ábyrgð
- Felur í sér stuðning við nemendur í kennslustundum.
- Hefur umsjón með nemendum í hádegi og frímínútum.
- Tekur þátt í þverfaglegu starfi árgangateyma.
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stuðningsfulltrúanám eða sambærilegt nám æskilegt.
- Reynsla af störfum stuðningsfulltrúa æskileg.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni og vera tilbúinn að vinna með öðrum m.a. í teymisstarfi.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Áhugi á að starfa með börnum og á auðvelt með að eiga samskipti við þau.
- Góð íslenskukunnátta í máli og riti.
Auglýsing birt6. júlí 2021
Umsóknarfrestur3. ágúst 2021
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Varða 6, 765 Djúpivogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniReyklausSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiSveigjanleikiTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leiðbeinendur í leikskóla á Reyðarfirði
Leikskólinn Lyngholt

Umsjónarkennari í unglingadeild – Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Baðvarsla stúlkna - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Óskum eftir leikskólakennara í Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg

Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur í frístundaheimilum í Laugardals-, Háaleitis- og Bústaðahverfi
Kringlumýri frístundamiðstöð

Leikskólakennari og/eða leiðbeinandi í 100% stöðu
Svalbarðsstrandarhreppur

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast
Leikskólinn Skerjagarður

Frístundaráðgjafi óskast í Molann - miðstöð unga fólksins
Molinn - miðstöð unga fólksins

Frístundaleiðbeinendur
Salaskóli

Forfallakennari í Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli