Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður

Sumarstarf í Búsetuþjónustu fatlaðs fólks

Akraneskaupstaður auglýsir laus til umsóknar störf í sumarafleysingu í Búsetuþjónustu fatlaðs fólks á Akranesi.

Um er að ræða fjölbreytt afleysingastörf yfir sumartímann í búsetukjörnum sem þjónusta fatlað fólk á heimili sínu.

Búsetuþjónustan sér um að veita fólki með langvarandi stuðningsþarfir aðstoð og stuðning til sjálfstæðs heimilishalds og félagslegrar þátttöku í samfélaginu.

Búsetuþjónustan vinnur eftir hugmyndafræði um valdeflingu og þjónandi leiðsögn. Starfsmenn þurfa að tileinka sér þessa hugmyndafræði og vinna eftir henni.

Æskilegt er að starfsmaður geti unnið samfellt yfir sumartímann frá miðjum maí til miðjan ágúst

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi í samræmi við ríkjandi hugmyndafræði búsetunnar og eftir þeim verklögum sem starfshópur vinnur eftir hverju sinni
  • Hvatning og stuðningur við íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni
  • Félagslegur og heilsufarslegur stuðningur við íbúa
  • Í starfinu felst allt daglegt heimilishald svo sem matseld, þrif, þvottur o.s.frv.
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun
  • Íslenskukunnátta er skilyrði
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Ökuréttindi og vilji til að keyra þar sem þjónustuþegi ferðast
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg
  • Reynsla af starfi með fólki með einverfu æskileg
  • Reynsla og þekking á starfi með fólki með geðræna erfiðleika æskileg
  • Reynsla af störfum með fólki sem sýnir erfiða hegðun æskileg
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Að virðing sé höfð að leiðarljósi í samskiptum við þjónustuþega, aðstandendur og samstarfsfélaga
  • Stundvísi, samviskusemi og jákvætt viðhorf
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Akraneskaupstaðar
  • Viðkomandi þarf að vera líkamlega hraustur
  • Æskilegt er að viðkomandi sé 20 ára eða eldri
Auglýsing birt3. febrúar 2025
Umsóknarfrestur18. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalbraut 4, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar