OK
Á árinu 2022 sameinuðust Opin Kerfi og Premis undir nafninu OK, en þar sameinast eldmóður, reynsla og þekking starfsfólks sem setur þarfir viðskiptavina í forgang.
OK hefur að skipa öflugu teymi reyndra sérfræðinga á flestum sviðum upplýsingatækni með langa reynslu af ráðgjöf, rekstri, þjónustu og innleiðingu lausna hjá flestum af stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins ásamt stórum erlendum viðskiptavinum.
Vinnustaðurinn er krefjandi og skemmtilegur þar sem starfsmenn eru hvattir til að vera sjálfstæðir í starfi og hafa áhrif á eigið starfsumhverfi.
Hjá OK starfar samhentur hópur fólks og er kapp lagt á að viðhalda góðum starfsanda, en það hefur skilað sér í ánægðu starfsfólki sem hefur fengið tækifæri til að vaxa og dafna í leik og starfi.
OK hlaut viðurkenninguna Fyrirtæki ársins 2023 sem veitt er fyrirtækjum fyrir framúrskarandi vinnuumhverfi og starfsanda, en fyrirtækið hefur hlotið þá viðurkenningu þrjú ár í röð.
Starf við vöktun á upplýsingatæknikerfum
OK leitar að áhugasömum einstakling til starfa við spennandi verkefni í vöktunarmiðstöð sem starfrækt er allan sólarhringinn.
Um er að ræða ca 50-60% hlutastarf á vöktum. Vaktirnar eru bæði á dagtíma og á kvöldin, virka daga og helgar.
Við leitum að pottþéttum einstakling sem uppfylla neðangreindar kröfur og getur hafið störf sem fyrst.
Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við alla sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að fylgjast með vöktunarkerfum og bregðast við samkvæmt viðbragðsáætlun
Að taka á móti beiðnum og koma í farveg
Samskipti og tilkynningar til viðskiptavina
Forgreining mála
Menntunar- og hæfniskröfur
Hreint sakarvottorð er skilyrði
Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
Gagnrýnin hugsun er kostur
Góð færni í íslensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
Góð færni í ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
Geta til að vinna einsamall/einsömul
Áhugi á upplýsingatækni er kostur
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
Auglýsing stofnuð7. júní 2023
Umsóknarfrestur18. júní 2023
Starfstegund
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Hæfni
Hreint sakavottorðMetnaðurSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Dyraverðir
The Irishman Pub
Kerfisstjóri í tölvudeild HVE
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Sérfræðingur á rekstrarvakt
Reiknistofa bankanna
Öryggisvörður í Vitatorgi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sumarstarf á Reykjanesi/Summer job in Reykjanes
Securitas
Sumarstarf í sundlaugin á Þelamörk
Íþróttamiðstöðin á Þelamörk
Starfsmaður á stjórnstöð
Öryggismiðstöðin
Öryggisverðir - Vaktferðir og útkallsþjónusta - Sumarstarf
Öryggismiðstöðin
Sumarstarfsfólk óskast í sundlaug að Hlöðum
Hvalfjarðarsveit
Öryggisvörður í farandgæslu
Securitas
Kerfisstjóri í notendaþjónustu - Húsavík
Advania
Sumarstarf í Íþróttamiðstöðinni á Djúpavogi
Íþróttamiðstöðin á Djúpavogi