Securitas
Securitas er þjónustufyrirtæki og er starf okkar að auka öryggi viðskiptavina með gildin okkar að leiðarljósi sem eru árvekni, heiðarleiki og hjálpsemi.
Hjá okkur starfa um 500 manns, flestir starfa á höfuðborgarsvæðinu en Securitas heldur úti þremur útibúum, á Akureyri, Eskifirði og Reykjanesi. Starfsfólkið samanstendur af fjölbreyttum og öflugum hóp fólks með ýmiskonar bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og búum þannig til umhverfi sem okkur öllum líður vel í. Umhverfið okkar er allt í senn krefjandi og skemmtilegt og hér er góð liðsheild sem skilar sér í meiri árangri og líflegri menningu og leggjum við mikla áherslu á samvinnu og fagmennsku. Það er gaman í vinnunni, mikið hlegið og við hjálpumst öll að við að gera dag hvers annars betri.
Securitas leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem eflir það og styrkir. Við erum stolt af því hversu margir hafa fengið að vaxa og þróast í starfi hjá Securitas, en hér er möguleiki á öflugri starfsþróun og tækifæri til að fylgjast með því sem er að gerast í starfseminni á hverjum tíma.
Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum. Við tryggjum það að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli kyns, þjóðernis, kynþáttar, kynhneigðar, trúar eða annarra þátta.
Starf í vöruhúsi
Við leitum að liðsauka í okkar frábæra teymi!
Viðkomandi aðili þarf að vera tilbúinn til að taka þátt í að byggja upp og viðhalda góðu þjónustustigi í vöruhúsi Securitas. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem við kemur móttöku og frágangi á vörum ásamt afgreiðslu pantana og samskiptum við innri og ytri viðskiptavini.
Ef þú...
-
Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
-
Sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að vinna sjálfstætt
-
Hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku
-
Ert með lyftarapróf væri það kostur
...þá erum við að leita af þér!
Í boði er spennandi starf í góðu starfsumhverfi í nýjum höfuðstöðvum Securitas við Tunguháls 11. Um er að ræða fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 8:00-16:00 virka daga.
Umsóknarfrestur er til og með 4. október nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnþór Guðjónsson, deildarstjóri lagers og eignaumsjónar, í síma 580-7000.
Fríðindi í starfi
- Fimm stjörnu mötuneyti með matreiðslumeistara og matráði
- Við tryggjum að þú fáir þjálfun, símenntun og aðgang að þeirri þekkingu sem til þarf
- Öflugt starfsmannafélag
- Samgöngustyrkur
- Stytting vinnuvikunnar
Auglýsing birt20. september 2024
Umsóknarfrestur4. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)
Hlutastarf á bókalager
BF-útgáfa ehf.
Sendill og lagerstarf
AB Varahlutir
Sala og afgreiðsla
Vatnsvirkinn ehf
Bílstjóri og tiltekt - Driver
Bakarameistarinn
Starfsmaður á lager og í búvöruverslun
SS - Sláturfélag Suðurlands
Starf á lager
Embla Medical | Össur
Lagerstarfsmaður - Lagnaverslun BYKO Breidd
Byko
Starfsmaður á verslun/lager í Hafnarfirði
Ferro Zink hf
Lagerstjóri
Héðinn
Lagerstarfsmaður SportsDirect
Sports Direct Lindum
Framleiðsla / Lager
Vogue
100% eða 50% starf til áramóta.
Partýbúðin