

Starf í Framleiðslu hjá BIOEFFECT
BIOEFFECT leitar að öflugum starfsmanni í átöppun á húðvörum félagsins. Um er að ræða fullt starf.
Vinnutími er 8-16 mánudaga til fimmtudaga og 8-15 á föstudögum.
Starfið tilheyrir framleiðslusviði félagsins sem sér um framleiðslu, pökkun og afgreiðslu á allri húðvörulínu BIOEFFECT. Vörurnar eru sendar til söluaðila á Íslandi og um allan heim en vörur félagsins eru seldar í 26 löndum. BIOEFFECT eru al-íslenskar húðvörur og fer öll framleiðsla vörulínunnar fram í höfuðstöðum félagsins í Kópavogi.
-
Undirbúningur íláta fyrir átöppun
-
Uppsetning og stilling átöppunarvélar
-
Átöppun húðvara
-
Þrif á vélum og vinnurými
-
Gæðaeftirlit við átöppun
-
Virk þátttaka í umbótum á vinnuferlum
-
Reynsla af framleiðslustörfum er kostur
-
Vandvirkni, nákvæmni og góð skipulagshæfni
-
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
-
Stundvísi, heiðarleiki og geta til að vinna sjálfstætt
-
Hæfni til að vinna undir álagi
-
Geta til að sinna líkamlega krefjandi starfi
-
Góð íslenskukunnátta
Íslenska










