

Starf hjá símaveri Landspítala - Er góð þjónusta þitt hjartans mál?
Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf í þjónustuveri spítalans. Starfið felst í símsvörun, netspjalli og skráningarverkefnum. Í boði er hlutastarf eða fullt starf eftir samkomulagi. Við leitum eftir þjónustuliprum einstaklingi með góða samskiptahæfni sem er sjálfstæður í starfi, með góða tölvukunnáttu og fljótur að læra og tileinka sér hlutina. Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Þjónustuver og móttökur heyra undir fasteigna- og umhverfisþjónustu sem tilheyra rekstrar- og mannauðssviði. Þjónustuver og móttökur er þjónustulunduð deild þar sem fjöldi starfsfólks er í kringum 25. Deildin sinnir annars vegar símsvörun og hins vegar móttökustörfum en saman vinnum við að fjölbreyttri og mikilvægri þjónustu við deildir, sjúklinga og gesti spítalans. Starfsfólk starfar eftir þjónustustefnu þar sem markmiðið er að vera til fyrirmyndar í þjónustu. Við bjóðum gefandi starf hjá traustum vinnuveitanda, góðan starfsanda, gott mötuneyti og styttri vinnuviku.





























































