Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Starf deildarstjóra fasteigna og tækja Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE)

Heilbrigðisstofnun Vesturlands auglýsir laust til umsóknar 100% starf deildarstjóra fasteigna og tækja HVE. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf sem snýr að rekstri og viðhaldi fasteigna og búnaðar stofnunarinnar. Starfsstöð deildarstjóra er á Akranesi.

Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar.

HVE rekur fjölbreytta heilbrigðisþjónustu og hefur starfsemi og fasteignir á átta starfsstöðvum: Akranesi, Borgarnesi, Ólafsvík, Grundarfirði, Stykkishólmi, Búðardal, Hólmavík og Hvammstanga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegu viðhaldi fasteigna, umhverfis og tækja. 

  • Samskipti við umsjónarmenn húsnæðis á starfsstöðvum HVE. 

    • Eftirlit með ástandi bygginga, tæknikerfa og tækjum. 

    • Skipulag og eftirfylgni viðhaldsverkefna í samráði við FSRE og aðra hagsmunaaðila. 

    • Skipulag daglegra verkefna deildarinnar. 

    • Samskipti og samvinna við verktaka og þjónustuaðila er þjónusta tæki og búnað. 

    • Tengiliður við FSRE - Framkvæmdasýsla ríkisins / Ríkiseignir. 

    • Þátttaka í gerð viðhaldsáætlana og annast eftirlit með framkvæmdum. 

    • Yfirumsjón með bifreiðum HVE. 

    • Yfirumsjón með vöru og sýnaflutningum innan HVE. 

    • Yfirumsjón með öryggis- og brunavörnum, þ.m.t. öryggisvörðum HVE. 

    • Þátttaka í umbótum og þróun verkferla á sviði fasteigna og tækja. 

    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Iðnmenntun og / eða tæknimenntun sem nýtist í starfi (t.d. húsasmíði, rafiðn, byggingatækni eða sambærilegt) er skilyrði. 

    • Iðnmeistaranám er æskilegt. 

    • Reynsla af viðhaldi og/eða umsjón fasteigna og tækja er æskileg. 

    • Þekking á tæknikerfum fasteigna er æskileg, svo sem loftræstingum, aðgangskerfum  og öryggiskerfum. 

    • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. 

    • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund. 

    • Góðir leiðtogahæfileikar, frumkvæði, áreiðanleiki og metnaður til að ná árangri í starfi. 

    • Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta skilyrði. 

    • Góð almenn tölvukunnátta. 

    Auglýsing birt20. febrúar 2026
    Umsóknarfrestur13. mars 2026
    Tungumálahæfni
    ÍslenskaÍslenska
    Nauðsyn
    Framúrskarandi
    EnskaEnska
    Nauðsyn
    Mjög góð
    Staðsetning
    Merkigerði 9, 300 Akranes
    Starfstegund
    Starfsgreinar
    Starfsmerkingar