

Starf á fasteignasviði Flóahrepps
Leitað er eftir metnaðarfullum, sjálfstæðum og jákvæðum starfsmanni til að sinna fjölbreyttum verkefnum í fasteignum hjá sveitarfélaginu Flóahreppi.
Starfshlutfall getur verið um 80-100%
Vinnutími virka daga og tilfallandi afleysingar um helgar fyrir aðra starfsmenn á fasteignasviði.
Unnið er í náinni samvinnu við aðra starfsmenn á fasteignasviði og undir verkstjórn umsjónarmanns fasteigna og sveitarstjóra.
Mikilvægt er að umsækjandi búi á svæðinu þar sem starfið krefst þess að vera nærri vinnustað.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf í ágúst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir um starfið ásamt starfsferilskrá og meðmælum berist í gegnum alfreð.is eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Hulda Kristjánsdóttir sveitarstjóri ([email protected])
- Húsvarsla og almenn viðhaldsvinna
- Umsjón með lóðum við fasteignir
- Undirbúningur vegna viðburða
- Tilfallandi þrif, uppstilling fyrir viðburði og frágangur
- Innkaup skv. fjárhagsáætlun
- Önnur tilfallandi verkefni
- Gild ökuréttindi
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi kostur
- Færni í mannlegum samskiptum
- Almenn tölvukunnátta
- Krafa um íslenskukunnáttu
- Stundvísi
- Áreiðanleiki
- Sveigjanleiki og jákvæðni
- Sjálfstæði
- Snyrtimennska
Íslenska
Enska










