
Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð er tæplega 2000 manna sveitafélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi. Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.

Starf á Eigna- og framkvæmdadeild
Starf á Eigna- og framkvæmdadeild
Eigna- og framkvæmdadeild auglýsir eftir öflugum einstaklingi í almennt starf á Eigna- og framkvæmdadeild. Starfið heyrir undir Framkvæmdasvið Dalvíkurbyggðar.
Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar er hluti af Framkvæmdasviði sveitarfélagsins. Deildin gegnir veigamiklu hlutverki í sveitarfélaginu í þjónustu við íbúa og stofnanir sveitarfélagsins. Eigna- og framkvæmdadeild starfar með öðrum starfsmönnum Framkvæmdasviðs við að ná markmiðum sviðsins og sveitarfélagsins sem best.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi æskileg s.s. iðnmenntun eða garðyrkjumenntun.
Þekking og reynsla af sambærilegum verkefnum.
Gott vald á íslenskri tungu í ræðu og riti.
Ökuréttindi.
Vinnuvélaréttindi kostur.
Rík þjónustulund, jákvæðni og góð samskiptahæfni.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Skipulagshæfni og nákvæmni.
Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umhirða og viðhald svæða sveitarfélagsins.
Þjónusta, umsjón og viðhald fasteigna og eigna sveitarfélagsins.
Ýmis konar tilfallandi verkefni jafnt utan sem innan húss.
Umsjón, eftirlit og samskipti við verktaka varðandi ýmis konar verkefni.
Ýmis önnur fjölbreytt tilfallandi verkefni.
Auglýsing birt13. september 2022
Umsóknarfrestur28. september 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Dalvík , 620 Dalvík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiFrumkvæðiJákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðVinnuvélaréttindiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (2)

