
Héðinn
Héðinn er leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni með yfir 100 ára reynslu af þjónustu við sjávarútveg, stóriðju og orkuiðnað, bæði hérlendis og erlendis.
Hjá fyrirtækinu starfa um 150 manns við fjölbreytt störf, allt frá hönnun að fullbúnum vörum ásamt viðhalds- og þjónustuverkefnum um allan heim.
Héðinn leitast við að veita samkeppnishæfa þjónustu á öllum sviðum og leggur mikið upp úr góðri starfsaðstöðu og aðbúnaði. Að auki leggur fyrirtækið áherslu á að fylgja framþróun í tækjakosti eins og unnt er til að auðvelda störf og auka gæði og framleiðni.
Starfsemin snýst einkum um fjölbreytta málmsmíði, vélaviðgerðir, endurnýjun og viðhald og helstu viðskiptavinir eru sjávarútvegsfyrirtæki, orkufyrirtæki, stóriðjufyrirtæki, sveitarfélög og önnur málmiðnaðarfyrirtæki.
Stærstu verkefnin í dag eru fyrir sjávarútveginn og stóriðju. Þessi verkefni spanna allt frá því að reisa fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi eða úti í heimi yfir í umhverfisvæna nýsköpun, viðgerðir og smíði.
Héðinn rekur fimm starfsstöðvar en meginþorri starfsfólks starfar í höfuðstöðvum félagsins við Gjáhellu. Aðrar starfsstöðvar eru þjónustuverkstæði á Grundartanga og útibú á Akureyri og í Noregi.
Húsakynnin við Gjáhellu eru 8.000 fermetrar og lóðin 20.000 fermetrar. Í húsinu er mötuneyti fyrir starfsfólk og glæsileg líkamsræktaraðstaða. Að auki hefur nýverið tekið í notkun stórglæsilegt afþreyingarrými fyrir starfsmenn með golf- og skothermi, píluspjöldum og fleiru sem starfsmenn geta nýtt sér utan vinnutíma.

Málmiðnaðarmaður - Grundartanga
Stálsmiður - Vélvirki - Vélfræðingur
Héðinn hf óskar eftir að ráða málmiðnaðarmenn til starfa við fjölbreytt verkefni við starfsstöð sína á Grundartanga.
Verkefni eru fjölbreytt við viðhald og þjónustu vélbúnaðar ásamt nýsmíði úr stáli.
Í boði er akstur til og frá Grundartanga ásamt heitum mat á hádegi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Iðnmenntun og/eða haldbær reynsla úr faginu
Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp
Metnaður fyrir faglegum vinnubrögðum
Helstu verkefni og ábyrgð
Viðhald og þjónusta á vélbúnaði
Nýsmíði úr stáli
Uppsetningar á búnaði
Samsetningar á vélbúnaði
Auglýsing birt4. maí 2022
Umsóknarfrestur31. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Gjáhella 4, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
BlikksmíðiRennismíðiStálsmíði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



