

Stálsmiður / Stálsmíðameistari óskast til starfa hjá Ísbor
Ísbor ehf leitar að öflugum, sjálfstæðum og skipulögðum stálsmið til að slást í hópinn. Við erum rótgróið og fjölhæft verktakafyrirtæki sem sérhæfir sig í steypusögun, kjarnaborun, stálsmíði og jarðvinnu. Hjá okkur er enginn dagur eins og verkefnin eru bæði fjölbreytt og krefjandi. Við bjóðum upp á gott starfsumhverfi, traustan tækjakost og samheldinn hóp starfsmanna.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Smíði, frágangur og uppsetning á stálvirkjum og burðarbitum í ýmis konar húsnæði í kjölfar steypusögunar.
- Fjölbreytt og tilfallandi stálsmíðaverkefni bæði á verkstæði og úti á verkstað.
- Almennt viðhald og viðgerðir á tækjum og búnaði fyrirtækisins á verkstæði.
- Málmsuða, svo sem að sjóða nýja demanta á kjarnabora, ásamt öðru tilfallandi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Sveinspróf eða meistararéttindi í stálsmíði er mikill kostur (einnig kemur reynslumikill málmiðnaðarmaður til greina).
- Skipulögð, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð eru skilyrði.
- Góð suðukunnátta og reynsla af vinnu eftir teikningum.
- Lausnamiðað hugarfar, stundvísi og góð samskiptahæfni.
- Almenn ökuréttindi (B-réttindi) er skilyrði.
Við bjóðum upp á:
- Fjölbreytt og skemmtilegt starf í góðum félagsskap.
- Góð laun í samræmi við menntun, réttindi og reynslu.
- Fullt starf og möguleika á að vaxa í starfi.
Umsóknir og nánari upplýsingar:
Okkar starfsstöð er í Lyngási í Garðabæ.
Áhugasamir eru hvattir til að senda ferilskrá og stutta kynningu hér eða á netfangið [email protected]. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar um starfið veitir Elís Viktor Kjartansson í síma 611-5550.
Auglýsing birt17. nóvember 2026
Umsóknarfrestur23. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngás 10A, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
StálsmíðiStálsmíði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (5)




