
Bláa Lónið
Bláa Lónið er fjölbreyttur, spennandi en umfram allt skemmtilegur vinnustaður. Hjá okkur starfar fólk á öllum aldri, af ólíkum uppruna og í ólíkum störfum. Draumastarfið þitt gæti verið handan við hornið.
Undirstaðan í öllu því sem við gerum er að skapa góðar minningar fyrir gesti okkar. Það gerum við með því að hafa gleði og umhyggju að leiðarljósi, ásamt því að bera virðingu fyrir gestum okkar og hvert öðru.
Ánægja starfsmanna og ánægja gesta er samofin. Við leggjum okkur fram við að skapa góðan starfsanda og viðhorfskannanir staðfesta mikla starfsánægju. Við viljum að þér líði vel í vinnunni. Hjá okkur starfa fremstu matreiðslumenn landsins og starfsmenn fá að að njóta þess í fyrsta flokks mötuneyti. Það verður enginn svangur í vinnunni hjá Bláa Lóninu.
Við vinnum með fólki og fyrirtækjum af ólíkum toga. Starfsmenn njóta þessara tengsla. Sem dæmi má nefna kort í líkamsrækt, afslættir af ýmis konar vörum, þjónustu og afþreyingu.
Við ræktum félagslífið með skipulögðum hittingum utan vinnutíma. Við skemmtum okkur, ýmist öll saman eða innan einstakra sviða og deilda. Við erum stærri en þú kannski heldur. Hjá okkur starfa tæplega 700 manns með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við erum ólík, en lærum af hvort öðru. Saman myndum við öfluga heild.

Stafrænn vörustjóri - B2B
Bláa Lónið leitar að metnaðarfullum stafrænum vörustjóra (Digital Product Manager) til að leiða þróun á bókunarlausnum og beintengingum sem þjóna fyrirtækjamarkaði Bláa Lónsins (B2B). Bláa Lónið starfar með fjölda fyrirtækja í ferðaiðnaðinum sem selja einstakar upplifanir Bláa Lónsins. Áhersla er á að veita samstarfsaðilum okkar fyrsta flokks þjónustu, efla samstarf og framúrskarandi notendaupplifun fyrir alla viðskiptavini Bláa Lónsins.
Stafrænn vörustjóri B2B lausna er ábyrgur fyrir sífelldri þróun og árangri stafræns vöruframboðs fyrir fyrirtækjamarkað (B2B) ásamt því að spila stórt hlutverk í stafrænni upplifun gesta Bláa Lónsins.
Starfið heyrir undir sviðið Digital & Data, þar starfar fjölbreyttur hópur fólks sem nýtur frelsis til nýsköpunar. Við leggjum áherslu á að þróa notendavænar lausnir með notkun nýjustu tæknilausna. Starfið felur í sér náið samstarf við aðrar deildir innan fyrirtækisins með það að markmiði að stuðla enn frekar að stafrænum vexti og framþróun.
Helstu verkefni
-
Byggja upp og leiða þróunarteymi fyrir B2B lausnir fyrirtækisins
-
Stefnumótun og forgangsröðun verkefna (e. product roadmap) fyrir B2B lausnir Bláa Lónsins í samstarfi við hagaðila
-
Stefnumótun, sýn og skjölun fyrir beintengingar við vöruframboð Bláa Lónsins
-
Yfirsýn yfir notendaupplifun og mælikvarða B2B lausna
-
Náin samvinna þvert á fyrirtækið og með öðrum vörustjórum
-
Upplýsingagjöf og fræðsla til helstu hagaðila innan fyrirtækisins
-
Leiða þróunarteymi, spretti og útgáfur
-
Tryggja gæði, öryggi og framkvæmd prófana
Hæfniskröfur
-
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
-
Góð þekking og reynsla af vörustjórnun (e. digital product management)
-
Góð tæknileg þekking til að tryggja samþættingu og árangursríka samvinnu við ytri aðila
-
Þekking og reynsla á Agile aðferðafræði
-
Hefur áhuga á frábærri notendaupplifun og er tæknisinnaður
-
Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni
-
Hæfileiki til að vinna þvert á fyrirtæki og miðla framtíðarsýn til ólíkra hópa
-
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Reynsla af ákvarðanatöku með aðstoð gagna
Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jónatan Arnar Örlygsson, forstöðumaður á netfangið: [email protected]
Í boði er starf á lifandi og skemmtilegum vinnustað sem býður upp á fjölbreyttar og krefjandi áskoranir. Einnig eru ýmis fríðindi í boði, eins og heilsuræktarstyrkur, þátttaka í einu öflugasta starfsmannafélagi landsins ásamt ýmsum öðrum fríðindum sem starfsfólki Bláa Lónsins bjóðast.
Viðkomandi mun hafa starfsstöð í skrifstofuhúsnæði Bláa Lónsins í Urriðaholti í Garðabæ.
____________________________________
Blue Lagoon is looking for an ambitious Digital Product Manager to lead the development of booking solutions and direct integrations serving Blue Lagoon’s B2B market. Blue Lagoon collaborates with numerous travel industry partners who sell its unique experiences, with a strong focus on providing top-tier service, strengthening partnerships, and ensuring an outstanding user experience for all Blue Lagoon customers.
The Digital Product Manager for B2B solutions is responsible for the continuous development and success of Blue Lagoon’s digital product offerings for the business market (B2B) while also playing a key role in the digital guest experience.
This role falls under the Digital & Data division, a diverse and innovative team with the freedom to innovate. We prioritize developing user-friendly solutions by leveraging the latest technologies. The Digital Product Manager will work closely with other departments to drive digital growth and advancement across the company.
Key Responsibilities
-
Build and lead the B2B solutions development team.
-
Define strategy and prioritize the product roadmap for Blue Lagoon’s B2B solutions in collaboration with stakeholders.
-
Develop the strategy, vision, and documentation for direct integrations with Blue Lagoon’s product offerings.
-
Oversee user experience and key performance metrics for B2B solutions.
-
Work closely across departments and with other product managers.
-
Communicate insights and provide training to key stakeholders within the company.
-
Lead the development team, sprints, and releases.
-
Ensure quality, security, and testing execution.
Qualifications
-
Education or experience relevant to the role.
-
Strong knowledge and experience in digital product management.
-
Technical expertise to ensure successful integrations and collaboration with external partners.
-
Familiarity with Agile methodologies and experience working in Agile teams.
-
Passion for great user experiences and a strong technical mindset.
-
Excellent communication and organizational skills.
-
Ability to work cross-functionally and communicate a clear vision to different teams.
-
Proactive and independent working style.
-
Experience using data-driven decision-making.
The application deadline is March 6th, 2025.
For more information about the role, don't hesitate to contact Jónatan Arnar Örlygsson, Director at Digital & Data Management, at [email protected]
This position is part of a lively and engaging workplace that offers a variety of diverse challenges. Employees also enjoy a range of benefits, including a fitness allowance, one of the country's most active employee associations, as well as various other benefits.
Our team operates from the Blue Lagoon office in Urriðaholt, Garðabær.
Auglýsing birt18. febrúar 2025
Umsóknarfrestur6. mars 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Urriðaholtsstræti 2-4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í kerfisgreiningum
Landsnet hf.

Hugbúnaðarsérfræðingur
Verkís

Viðskiptafræðingur á fjármálasvið
Verkís

Hönnuður ljósleiðarakerfis
Ljósleiðarinn

Tækniteiknari
VSB verkfræðistofa

Sviðsstjóri samgöngu- og skipulagssviðs
VSB verkfræðistofa

Planning Staff
PLAY

Verkefnastjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar
UMF Stjarnan

Summer Employee - Associate Software Engineer
Marel

DevOps
Helix Health

Forritari í þróunarteymi
dk hugbúnaður ehf.

Sérfræðingur í opinberum innkaupum
FSRE