
Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyinga sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Simans eru skapandi, fagleg og árangursdrifin.

Stafrænn vöruhönnuður
Við leitum að metnaðarfullum stafrænum vöruhönnuði í teymi Viðskiptakerfa hjá Símanum. Stafrænn vöruhönnuður ber ábyrgð á hönnun og þróun notendaviðmóta fyrir vefsíður og aðrar stafrænar vörur Símans. Hlutverkið felur í sér að tryggja samræmi í hönnun, skapa notendavæna upplifun og vinna þétt með þverfaglegu teymi í þróunarferlinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun og þróun notendaviðmóta fyrir vefsíður og stafrænar vörur
- Taka þátt í að byggja upp hönnunarkerfi og leiðarvísir fyrir samræmda upplifun
- Náin samvinna með vöruþróunarteymi, forriturum og öðrum hagsmunaaðilum
- Prófanir og endurbætur á hönnun byggðar á notendarannsóknum og endurgjöf
- Skilgreining og framsetning á notendaupplifun (UX) í samræmi við þarfir notenda
- Gerð frumgerða, wireframes og mockups fyrir nýjar vörur og eiginleika
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun eða reynsla af stafrænni hönnun
- Reynsla af helstu hönnunarforritum, eins og Figma eða öðrum sambærilegum tólum
- Góður skilningur á hönnunarferli frá hugmyndavinnu til lokaafurðar er skilyrði
- Hæfni til að vinna úr notendarannsóknum og skilgreina þarfir notenda
- Reynsla af notendaprófunum og rannsóknum er kostur
- Grunnskilningur á forritun sem og þekking á HTML og CSS er kostur
- Skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptafærni
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Auglýsing birt14. mars 2025
Umsóknarfrestur23. mars 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FigmaFrumkvæðiÍmyndarsköpunMannleg samskiptiNotendaupplifun (UX)Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)