
Ferðafélagið Útivist
Síðan 1975 hefur Ferðafélagið Útivist boðið félagsmönnum sínum og öðrum upp á fjölbreyttar ferðir í skemmtilegum félagsskap.
Útivist býður upp á dagsferðir, helgarferðir, sumarleyfisferðir og kvöldferðir með Útivistarræktinni. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi allt frá léttum gönguferðum upp í erfiðar fjallaferðir að sumri og vetri fyrir vel þjálfað fólk.
Allt frá því Útivist kom upp aðstöðu í Básum í Þórsmörk hefur hjarta félagsins slegið þar. Síðar kom félagið sér upp fleiri skálum eða gekk til samstarfs við heimamenn um nýtingu skála sem þegar voru til staðar. Skálarnir eru nú orðnir sjö talsins; í Básum, á Fimmvörðuhálsi, við Sveinstind, í Skælingum, við Álftavötn, Strútsskáli og Dalakofinn.

Staðarhaldari í Básum
Umsjón með rekstri skála og tjaldsvæðis Útivistar í Básum á Goðalandi (Þórsmerkursvæði). Starfið felur í sér verkstjórn yfir skálavörðum sem ráðnir eru yfir sumartímann.
Við leitum að aðila með reynslu af mannaforráðum og stjórnun.
Reynsla af ferðaþjónustu og/eða þekking á útivist æskileg.
Viðkomandi þarf að vera handlaginn og hafi lag á viðhaldi ýmissa tækja og húsakosts.
Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum er mikilvægur eiginleiki.
Viðkomandi þarf hafa gott vald á íslenskri tungu, en jafnframt geta tjáð sig á ensku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkstjórn yfir skálavörðum og ber ábyrgð á störfum þeirra. Ber ábyrgð á daglegum uppgjörum og skilum á gögnum. Tryggja að tækjabúnaður á staðnum sé ávallt í góðu ástandi.
Auglýsing birt3. maí 2021
Umsóknarfrestur10. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Laugavegur 178, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



