Securitas
Securitas
Securitas

Spennandi verkefni í öryggisgæslu

Við leitum að liðsauka í okkar frábæra gæsluteymi til að taka þátt í að viðhalda góðu viðbragði og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini okkar. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Ef þú...

  • býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt
  • býrð yfir metnaði til að takast á við krefjandi verkefni
  • Hefur reynslu í öryggisgæslu er það kostur

... þá gætum við verið að leita að þér!

Sem öryggisvörður í staðbundinni gæslu sinnir þú fjölbreyttum verkefnum á borð við öryggisgæslu á föstum gæslustöðum, rýrnunareftirliti í verslunum og ýmsum sérverkefnum.

Í boði er 100% starf þar sem almennt er unnið á vaktakerfinu 7-7 á ýmist dag- eða næturvöktum.

Starfið hentar öllum kynjum sem hafa náð 20 ára aldri með góða íslenskukunnáttu og hreint sakavottorð. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí Næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ísleifur Árnason, deildarstjóri Staðbundinnar gæslu, í síma 580-7000.

Auglýsing birt30. júní 2026
Umsóknarfrestur15. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar