Landhelgisgæsla Íslands
Landhelgisgæsla Íslands

Spennandi tækifæri hjá Landhelgisgæslunni í Fjallabyggð

Landhelgisgæsla Íslands leitar að sveigjanlegum, skipulögðum og drífandi einstaklingi til að sinna stöðu umsjónaraðila á siglingasviði á starfsstöð Landhelgisgæslunnar á Siglufirði. Um er að ræða umsjón með því varðskipi Landhelgisgæslunnar sem gert er út frá Siglufirði, gerð og umsjón handbóka og þjálfunaráætlana fyrir siglingasvið auk annarra tilfallandi verkefna sem snúa að rekstri varðskipa Landhelgisgæslunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón og eftirlit með varðskipum stofnunarinnar þegar þau eru í höfn á Siglufirði
  • Þátttaka í gerð, endurskoðun og eftirfylgni handbóka og verklagsreglna siglingasviðs
  • Þátttaka í gerð gæðaferla siglingasviðs, t.d. á sviði þjálfunar og umhverfismála
  • Samskipti við áhafnir og aðkoma að ráðningum
  • Samskipti við verktaka og birgja vegna varðskipa
  • Verkefni er varða rekstur skipa stofnunarinnar
  • Vegna eðlis verkefna þegar varðskip eru við bryggju þarf viðkomandi að sinna bakvöktum og vera til taks utan hefðbundins vinnutíma samkvæmt skilgreindu skipulagi

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á siglingum og skipum er kostur
  • Þekking og reynsla í gerð verkferla er kostur
  • Sveigjanleiki og áhugi á að tileinka sér nýja færni
  • Mjög góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Snyrtimennska og góð umgengni
  • Góð almenn tölvufærni
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti

Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skulu starfsmenn uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.

Auglýsing birt20. nóvember 2025
Umsóknarfrestur8. desember 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Siglufjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SiglingarPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar