
Norðurál
Norðurál, sem rekur álver á Grundartanga, var valið Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 af Samtökum atvinnulífsins. Framþróun grænnar álframleiðslu mun hafa raunveruleg áhrif á útblástur gróðurhúslofttegunda á heimsvísu. Íslenski áliðnaðurinn er ein stærsta útflutningsgrein landsins og ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs.
Álið okkar, Natur-Al, skilur eftir sig eitt minnsta kolefnisspor í heimi. Þegar litið er á ferlið í heild, frá vinnslu hráefna til afhendingar fullunninnar vöru, nemur kolefnisspor áls frá Norðuráli einungis um fjórðung af heimsmeðaltalinu. Við stefnum að því að verða fyrsta álver í heiminum sem framleiðir kolefnishlutlaust ál.
Hjá Norðuráli leggjum við áherslu á virðingu fyrir mannréttindum, samfélagi og umhverfi. Öryggi, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi og lögð er áhersla á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda.
Hjá Norðuráli starfa um 600 fastráðin, þar af 350 í vaktavinnu, 150 sérfræðingar með fjölbreytta menntun og 100 í iðnaðarstörfum. Til viðbótar eru um 150 í afleysingum.
Norðurál er ASI vottað sem staðfestir að fyrirtækið stenst ítrustu kröfur um samfélagslega ábyrgð, heiðarlega viðskiptahætti, umhverfisvænt hráefni og framleiðslu. Gæðastjórnunarkerfi Norðuráls er vottað samkvæmt alþjóðlega ISO 9001 staðlinum og umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækisins eru vottuð samkvæmt ISO 14001 og ISO 45001 stöðlum. Norðurál er jafnlaunavottað fyrirtæki og er handhafi gullmerkis PWC.

Spennandi sumarstörf vélvirkja og rafvirkja
Norðurál leitar að vélvirkjum og rafvirkjum til starfa hjá fyrirtækinu í sumar. Nemar eru einnig velkomnir. Þú þarft að hafa náð 18 ára aldri og hafa gild ökuréttindi. Störfin eru í dagvinnu og henta öllum kynjum. Starfsfólki bjóðast ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu.
Við leggjum áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda. Sumarstarfsfólk fer í markvissa þjálfun í upphafi starfstíma, þar sem höfuðáhersla er lögð á öryggi og þekkingu á vinnuumhverfi og tækjabúnaði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- 18 ára lágmarksaldur
- Mikil öryggisvitund og árvekni
- Heiðarleiki og stundvísi
- Góð samskiptahæfni
- Dugnaður og sjálfstæði
- Bílpróf er skilyrði
- Grunndeild iðnaðar lokið eða a.m.k. 80 einingum í námi lokið
Fríðindi í starfi
- Ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu
- Vinnuvélaréttindi
Auglýsing birt9. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiÁreiðanleikiMannleg samskiptiStundvísiVandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Viðgerðarmaður á verkstæði
Garðlist ehf

Umsjónarmaður eignastýringarkerfis
Landsnet hf.

Vélvirki / vélstjóri / bifvélavirki hjá Set Selfossi
Set ehf. |

Kennari í vélstjórnargreinum á A- og B-stigi
Menntaskólinn á Ísafirði

Kennari í rafiðngreinum
Menntaskólinn á Ísafirði

Innviðir framtíðarinnar - Ofar leitar að sérfræðingum í gagnaverum
Ofar

Vélvirki á Eskifirði
HD Iðn- og tækniþjónusta

Tæknimaður Brunaviðvörunarkerfa og Myndavélakerfa
Árvirkinn ehf.

Tæknimaður Þjófaviðvörunar- og Aðgangsstýringakerfa
Árvirkinn ehf.

Tæknimaður Prófanir Brunaviðvörunarkerfi og Neyðarlýsingu
Árvirkinn ehf.

Rafvirkjar og verkefnastjórar óskast - Fjölbreytt og spennandi verkefni hjá Árvirkjanum.
Árvirkinn ehf.

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar
Landsnet hf.