Spennandi sumarstörf ungmenna á aflstöðvum
Skemmtileg vinna sem skiptir máli.
Ert þú ungmenni á aldrinum 16-19 ára? Þá eru sumarstörf ungmenna eitthvað fyrir þig!
Sumarið 2025 ráðum við til starfa ungt fólk í sumarstörf við aflstöðvar okkar. Sumarstörfin eiga við ungmenni fædd á árunum 2006-2009.
Í sumar verða starfræktir hópar við Blöndu, Laxárstöðvar, Kröflustöð, Fljótsdalsstöð, Búrfell og Sogsstöðvar. Sumarvinnuhóparnir sinna daglegri umhirðu við aflstöðvar, auk þess sem hóparnir taka að sér önnur umhverfistengd verkefni í nágrenninu.
Þau sem hafa unnið hjá fyrirtækinu áður og staðið sig vel hafa forgang um vinnu. Við hvetjum ykkur til að vanda umsóknina og nota reitinn "Annað" til frekari upplýsinga um t.d. fyrri störf, tómstundir eða annað sem ykkur finnst skipta máli fyrir umsóknina.
Sumarvinnuhóparnir verða staðsettir á eftirfarandi starfsstöðvum. Vinsamlegast tilgreinið í umsókninni hvaða starfsstöð þið sækið um.
- Blanda - Ferðir daglega frá Blönduósi
- Laxá - Starfsfólk kemur sér sjálft á staðinn
- Krafla - Starfsfólk kemur sér sjálft á staðinn
- Fljótsdalur - Ferðir daglega frá Egilsstöðum
- Þjórsársvæði - Ferðir daglega frá Selfossi
- Sogssvæði - Ferðir daglega frá Selfossi
- Umhirða í umhverfi aflstöðvar
- Umhirða gróðurs og beða
- Málningarverkefni
- Önnur umhverfistengd verkefni
- Grunnskólapróf
- Frábært mötuneyti
- Ferðir til og frá vinnu