
Norðurál
Norðurál, sem rekur álver á Grundartanga, var valið Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 af Samtökum atvinnulífsins. Framþróun grænnar álframleiðslu mun hafa raunveruleg áhrif á útblástur gróðurhúslofttegunda á heimsvísu. Íslenski áliðnaðurinn er ein stærsta útflutningsgrein landsins og ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs.
Álið okkar, Natur-Al, skilur eftir sig eitt minnsta kolefnisspor í heimi. Þegar litið er á ferlið í heild, frá vinnslu hráefna til afhendingar fullunninnar vöru, nemur kolefnisspor áls frá Norðuráli einungis um fjórðung af heimsmeðaltalinu. Við stefnum að því að verða fyrsta álver í heiminum sem framleiðir kolefnishlutlaust ál.
Hjá Norðuráli leggjum við áherslu á virðingu fyrir mannréttindum, samfélagi og umhverfi. Öryggi, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi og lögð er áhersla á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda.
Hjá Norðuráli starfa um 600 fastráðin, þar af 350 í vaktavinnu, 150 sérfræðingar með fjölbreytta menntun og 100 í iðnaðarstörfum. Til viðbótar eru um 150 í afleysingum.
Norðurál er ASI vottað sem staðfestir að fyrirtækið stenst ítrustu kröfur um samfélagslega ábyrgð, heiðarlega viðskiptahætti, umhverfisvænt hráefni og framleiðslu. Gæðastjórnunarkerfi Norðuráls er vottað samkvæmt alþjóðlega ISO 9001 staðlinum og umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækisins eru vottuð samkvæmt ISO 14001 og ISO 45001 stöðlum. Norðurál er jafnlaunavottað fyrirtæki og er handhafi gullmerkis PWC.

Spennandi sumarstörf í mötuneyti og ræstingum
Við leitum að hressu og duglegu fólki í sumarstörf bæði í mötuneytið og ræstingarteymið okkar á Grundartanga. Störfin eru bæði í dagvinnu og á dag- og kvöldvöktum. Þú þarft að hafa náð 18 ára aldri og hafa gild ökuréttindi. Vilt þú starfa með okkur á Gundartanga í sumar?
Við leggjum áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda. Sumarstarfsfólk fer í markvissa þjálfun í upphafi starfstíma, þar sem höfuðáhersla er lögð á öryggi og þekkingu á vinnuumhverfi og tækjabúnaði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- 18 ára lágmarksaldur
- Sjálfstæð og örugg vinnubrögð
- Þjónustulund og góð samskiptahæfni
- Vandvirkni
- Öryggisvitund
- Snyrtimennska og stundvísi
- Bílpróf skilyrði
Auglýsing birt9. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiNákvæmniStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Skólaliði og frístundarleiðbeinandi í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Afleysingarmanneskja í mötuneyti
Embla Medical | Össur

Starfsfólk óskast í íþróttamiðstöðvar
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar

Starfsmaður í mötuneyti - aðra hverja helgi
Reykjalundur

Sumarafleysingar á Höfða
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Sótthreinsitæknir óskast til starfa
Læknastöðin Orkuhúsinu

Matreiðslumaður/aðstoð í elhús/chef/assistant
Sæta Svínið

Nemi / aðstoð í eldhúsi á Fiskmarkaðnum
Fiskmarkaðurinn

Matreiðslumaður á hjúkrunar-og dvalarheimilinu Höða
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Matreiðslumaður - Chef
Hnoss Bistro

Af hverju ekki að prófa að vinna á líflegum og skemmtilegum veitingastað í sumar
Golfklúbburinn Keilir

🥤 KFC KOKKUR 🍗
KFC