Sölustjóri Íslandsferða á neytendamarkaði (B2C)
GoNorth er ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í skipulagningu ferða um Ísland fyrir erlenda ferðamenn. GoNorth óskar eftir að ráða sölustjóra B2C í fullt starf á skrifstofu okkar í Hafnarfirði. Í starfinu felst að setja á laggirnar og byggja upp sterkt vörumerki á B2C markaði í náinni samvinnu við vinnuhóp. Einnig sala og þjónusta við viðskiptavini, markaðsetning, vöruþróun og annað tilfallandi tengt starfinu. Um framtíðarstarf er að ræða.
Sköpun vörumerkis, markaðssetning og auglýsingagerð
Vöruþróun, markaðsgreining og val á markhópum
Val á dreifingarleiðum, gangsetning þeirra og viðhald
Auglýsingagerð og textasmíði á ensku, aðkoma að gerð vefsíðu
Samskipti við viðskiptavini, tilboðsgerð og sala
Vinnsla á bókunum og utanumhald ferðaáætlana
Brennandi áhugi og víðtæk þekking á Íslandi sem áfangastað ferðamanna
Reynsla af sölu- og markaðsstörfum
Reynsla af stjórnunarstörfum og störfum í ferðaþjónustu er mikill kostur
Menntun í markaðs- og eða ferðamálafræði, eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Þekking og reynsla af markaðsetningu á netinu og samfélagsmiðlum
Framúrskarandi enskukunnátta í töluðu og rituðu máli, kostur ef enska er móðurmál
Góð íslenskukunnátta, frekari tungumálakunnátta er kostur
Góð framkoma, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
Að hafa frumkvæði að málum geta til að fylgja þeim eftir