Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Söluráðgjafi smart

Við leitum að metnaðarfullum og drífandi aðila í starf söluráðgjafa smart hjá Bílaumboðinu Öskju. Í boði er einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og vexti á þessu nýja og spennandi vörumerki á Íslandi þar sem verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi í lifandi og skemmtilegu starfsumhverfi.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Markmið fyrirtækisins er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði. Askja er í fremstu röð þegar kemur að framboði raf- og tengiltvinnbifreiða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Söluráðgjöf
  • Móttaka viðskiptavina og símsvörun
  • Tilboðsgerð, eftirfylgni og samningagerð
  • Úthringiherferðir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölustörfum
  • Rík þjónustulund og mikil samskiptahæfni 
  • Sjálfstæð vinnubrögð og vilji til að ná árangri í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta 
Af hverju Askja?
  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Samkeppnishæf laun
  • Reglulegir viðburðir
  • Allir hafa rödd sem hlustað er á
  • Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
Auglýsing birt7. febrúar 2024
Umsóknarfrestur25. febrúar 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar