
ELKO
ELKO, stærsta raftækjaverslun landsins, opnaði þann 28. febrúar árið 1998 og varð strax frá upphafi leiðandi á sínu sviði á Íslandi.
ELKO hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða þekkt vörumerki raftækja á lágu verði.
Verslanir eru sex og með samtals 5.000 m2 sölusvæði auk stórs vöruhúss.
Hjá ELKO starfa um 240 manns. Verslanir ELKO eru í Lindum, Skeifunni, Granda, Akureyri, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Vefverslun ELKO.is

Söluráðgjafi í ELKO Lindum
Langar þig að vinna á skemmtilegum vinnustað með fjölbreytt verkefni og frábæru samstarfsfólki?
ELKO í Lindum leitar að starfsfólki sem er jákvætt og með mikla þjónustulund.
ELKO leggur áherslu á góða nýliðamóttöku og þjálfun.
Starf söluráðgjafa felur meðal annars í sér að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu, verðmerkja og stilla upp vörum eftir verslunarstöðlum. Vinnutími er almennt frá kl. 11-19 en getur breyst aðeins vegna starfsmannafræðslu.
Helstu verkefni
- Ráðgjöf á vörum og þjónustu
- Áfylling og uppstilling
- Verðmerkingar
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
- Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Framúrskarandi færni í samskiptum og rík þjónustulund
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- Reynsla af þjónustustörfum er kostur
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Afsláttarkjör hjá ELKO, Krónunni og N1
- Aðgangur að velferðarpakka ELKO
- Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias
- Öflugt félagslíf með reglulegum viðburðum
- Starfsmannafélag með góðum vildarkjörum
- Niðurgreiddur hádegismatur
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ágúst Ingi Kristjánsson verslunarstjóri ([email protected])
Umsóknarfrestur er til og með 31.mars.
Hvetjum öll þau sem uppfylla hæfniskröfur að sækja um
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skógarlind 2, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Söluráðgjafi í Fagmannaverslun
Húsasmiðjan

Rauði krossinn óskar eftir öflugum aðila í fjáröflun
Rauði krossinn á Íslandi

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Orkusalan

Sölufulltrúi - Timburverslun BYKO
Byko

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf

Hlutastarf í Gryfjunni
Gryfjan

Kjörbúðin Blönduósi - Umsjón með bakaríi
Kjörbúðin

Sölufulltrúi 66° Norður
66°North

Fullt Starf í Versluninni Sportís
Sportís ehf

Starfsmaður í árstíðar- og heimilisdeild - BYKO Selfoss
Byko